141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.

618. mál
[20:19]
Horfa

Ásbjörn Óttarsson (S):

Virðulegi forseti. Við erum að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík. Það er óhætt að segja í upphafi máls að framkvæmdin sem um ræðir er ekki óumdeilanleg. Ég vil segja að ég er mjög hlynntur því að hverfa frá svokallaðri leiguleið eða einkaframkvæmd og fara yfir í ríkisframkvæmd, ég hef alla tíð haldið því fram í meðförum málsins, bæði í nefndinni og í þingsal. Af hverju skyldi ég vera í þessum stjórnmálaflokki og á móti einkaframkvæmdum? Það á ekki við um allt heldur eingöngu þetta verkefni. Ef við setjum það í samhengi fól einkaframkvæmdin í raun og veru bara í sér húsbyggingarnar vegna þess að hitt var annars vegar mannauðurinn og hins vegar tækjakosturinn og eignin okkar snýr auðvitað að því. Það voru því einungis húseignirnar og byggingarnar sem áttu að vera í einkaframkvæmd. Það hringdi einhvern veginn bjöllum hjá mér. Í fyrsta lagi gat enginn fengið betri vaxtakjör en ríkissjóður við svona stóra framkvæmd. Í öðru lagi þurfti ákveðinn umsýslukostnað við rekstur á eignunum og til að fylgjast með þeim og endurleigja til ríkisins. Ég keypti því aldrei þá hugmynd að fara með byggingarnar í einkaframkvæmd. Ég fagna þeirri breytingu sem um ræðir.

Það er mjög mikilvægt að það sé alveg á hreinu hvað um ræðir. Það er alveg klárt að menn fara ekki í þær framkvæmdir sem er verið að fjalla um, þ.e. stærstu framkvæmdina. Ég átta mig ekki alveg á því, og það er eitthvað sem við þurfum að komast að í meðförum nefndarinnar, hvað breytingin á 2. gr. þýðir, hvort hæstv. ráðherra sé heimilt, þótt það komi skýrt fram í niðurstöðu um frumvarpið að ekki megi hefja þar framkvæmdir, að fara af stað í einhverja vinnu og þá hverja. Það er nokkuð sem verður að koma í ljós í meðförum nefndarinnar.

Það er líka mjög mikilvægt að alveg skýrt sé hvernig á að nálgast verkefnið. Út af þeim misskilningi sem hefur orðið þá kom til að mynda fram í upphafi málsins í meðförum hv. fjárlaganefndar að með því að fara í framkvæmdina væri hægt að draga úr rekstrarkostnaði spítalans um ákveðna prósentutölu. Við spurðum, eða ég a.m.k., töluvert um við hvað sú tala var miðuð, hvort hún væri miðuð við áður en spítalinn fór að skera niður og ef ekki hver staðan væri þá svo hægt væri að finna raungildið þegar kæmi að framkvæmdinni og hafa viðmiðunarpunkt. Þegar við fórum yfir málið snemma hausts og staðan í nefndinni var kynnt var akkúrat komið að því sem hæstv. ráðherra sagði áðan, að vegna þess að þjóðin er að eldast er þörfin fyrir innlagnir og spítalaþjónustu meiri og því er mjög mikilvægt að allt sé á hreinu. Er verið að bregðast við fyrirséðri fjölgun innlagna eða rekstri sem við erum að núllstilla núna? Það er mikilvægt að ekki sé misskilningur í umræðunni hvað þá hluti varðar.

Síðan er umhugsunarefni fyrir okkur öll hvernig þróunin hefur verið. Það virðast hafa verið einhver átök um hvora leiðina ætti að fara, samanber að þegar málið kom inn í fjárlagagerðina fyrir árið 2013 gerðist það þannig að búið var að taka breytingartillögu meiri hlutans úr nefndinni til 3. umr. þegar ákveðið var að setja nefndarálitið aftur í nefnd til að gera þessa ákveðnu breytingu. Ég held að mikilvægt sé að við lærum af því að áríðandi er að miðla upplýsingum til allra, ekki bara til stjórnarflokkanna. Það er mikilvægt að það gerist svo allir séu staddir á sama stað í meðförum málsins.

Það er mikilvægt að mínu mati að þegar, og ef, frumvarpið verður samþykkt sé undirbúningsvinnan hafin strax. Ég á ekki eingöngu við hvort hægt verði að koma því inn í ríkisfjármálaáætlunina sem er ekki hægt, það gefur algerlega augaleið og kemur mjög skýrt fram að það rúmast ekki innan hennar nema önnur verkefni víki. Það væri kannski umhugsunarvert fyrir hv. stjórnarliða að draga aðeins andann og hugsa um framkvæmd sem á væntanlega að hefjast á næstu vikum, ég veit ekki nákvæmlega hver staðan er, og er bygging húss íslenskra fræða. Ég held að ágætt væri að menn hugsuðu um hvaða hugsanlegu áhrif það hefur á bygginguna sem um ræðir.

Það kemur skýrt fram að við þurfum að hefja vinnuna við að koma því inn í ríkisfjármálastefnuna. Það er alveg útilokað, hvort sem litið er til skemmri eða lengri tíma, að gera það nema taka aðrar framkvæmdir út. Það liggur fyrir að breyta þarf þeirri vegferð sem ríkisfjármálastefnan gerir ráð fyrir og fara að greiða niður skuldir til að losna við vaxtakostnaðinn. Það kemur meira að segja fram í umsögninni og í umræðunni áðan að heildarkostnaðurinn eins og hann er áætlaður samsvarar vaxtagjöldum ríkisins í eitt ár. Það minnir okkur kannski á það enn eina ferðina hversu þarft er að fara að greiða niður skuldir ríkissjóðs.

Við þurfum að hafa alveg á hreinu að mikilvægt er að tíminn sem er fram undan sé nýttur, bæði af hálfu fjármálaráðuneytisins og af hálfu velferðarráðuneytisins, að farið sé í vinnuna og komið með upplýsingar inn í þingið þegar menn taka hugsanlega ákvarðanir í haust eða næsta haust, eða hvenær sem það verður, um að fara í einhverjar framkvæmdir. Menn geta ekki bara horft út frá þessari framkvæmd hér af því að við sjáum alveg fyrir okkur hvernig umræðan verður. Hún verður um það að hér séu einhver sjúkrahús sem eru stutt frá og standa hálftóm eða eru auð og alla vega. Við þurfum að skoða heilbrigðisþjónustuna í heild sinni og fara yfir hvernig við ætlum að skilgreina hana inn í framtíðina. Það er mikilvægt að þær upplýsingar komi fram, ég tala nú ekki þar sem þetta er ein stærsta framkvæmd Íslandssögunnar upp á 85 milljarða, þótt 15 milljarðar komi til baka í formi virðisaukaskatts og eins er gert ráð fyrir því að selja eignir fyrir 7,5 milljarða. Ég segi fyrir mig að ég hef miklar efasemdir um að þau áform gangi eftir en það er svo sem ekki hægt fullyrða neitt um það.

Af því að erum við að ræða þau mál er brýnt að fara í vandaða undirbúningsvinnu sem fyrst. Við erum með í umsögninni og gert er ráð fyrir því í kostnaðarmatinu að sveiflujöfnunin sé -10% eða 15%. Við erum að tala um 25% sveiflu í verkefninu vegna þess að hönnunin er ekki komin nema um 25%. Það verður að vera alveg á kristaltæru og þess vegna er sveiflujöfnunin þarna inni og fjárlagaskrifstofan bendir á hana.

Ég hef farið lauslega yfir að fyrir liggur að undirbúningurinn verður að vera vandaður, hvernig menn sjá þetta gerast í framtíðinni. Eins verður að hafa alveg á hreinu það sem snýr að hagræðingunni og því sem kemur fram, það blasir við. Mér fannst vanta dálítið í umræðuna. Þegar maður kallaði eftir upplýsingum og sagt var að við að sameina stofnunina eða setja Landspítalann á einn af öllum þeim starfsstöðum sem hann er á var hagræðingin í ákveðinni prósentutölu. Það er bara „common sense“. Maður fór dýpra í umræðuna og vildi reyna að skilja hvað sparaðist mikið, t.d. í launakostnaði því ekki spörum við í lyfjakostnaði með sameiningunni. Við þurfum að greina hvernig þetta er því að því miður er það allt of oft ekki gert. Fyrir einhverjum dögum síðan voru samþykkt nokkur frumvörp þar sem eru settar fram tölulegar staðreyndir eða sparnaður í prósentum við að fara í ákveðna aðgerð. Síðan þegar er kallað eftir gögnunum sem eiga að liggja að baki því, forsendurnar fyrir því, er einhvern veginn alltaf blankó blað. Ég segi í fullri einlægni við þá sem hafa mikla trú á málinu og vilja að það gangi fram að mikilvægasta verkefni þeirra sé að hafa þær upplýsingar sem kallað er eftir í umræðunni algerlega á hreinu.

Við verðum að meta hvað er búið að skera mikið niður miðað við þær forsendur sem við erum að leggja af stað með. Það kemur reyndar fram í umsögn fjárlagaskrifstofu fjármálaráðuneytisins að það þarf að vera algerlega á hreinu. Við erum að taka ákvarðanir til framtíðar. Þegar verkefnið var kynnt í upphafi ætluðu menn að hagræða og þá var alltaf miðað við að farið væri í alla framkvæmdina. Hugsanlega að skipta henni upp og ákveðnar hugmyndir eru um að fara leiguleið með húsin þrjú. Ég verð að hvetja hv. þingmenn til að hugsa mjög vandlega af hverju við erum að fara með sumt af framkvæmdunum í leigu? Af hverju höfum við ekki alla framkvæmdina ríkisframkvæmd? Hvað kallar endilega á að taka hluta af framkvæmdinni? Ég geri mér alveg grein fyrir því að þar er um miklu minni upphæðir að ræða en hvað með til að mynda bygginguna á bílastæðahúsinu, sjúkrahótelinu og skrifstofubygginguna, af hverju höfum við það ekki allt sem ríkisframkvæmd? Ég held að við þurfum að spyrja okkur að því. Ég segi fyrir mína parta að við verðum að taka umræðuna um hvað það færir okkur að fara þessa leið.

Svo er ekki gott að málið komi svona seint fram og á þennan hátt, það held ég að sé alveg klárt. Þegar við vorum í umræðunni um fjárlögin í desember var sagt að málið kæmi fljótlega inn í þingið og allir sem tóku þátt í umræðunum þá voru sammála að brýnt væri að halda öllum upplýstum. Ég held að það muni einungis skemma fyrir málinu ef þeim upplýsingum sem er nauðsynlegt að allir fái er ekki miðlað.

Að mínu viti er mikilvægasta að undirbúa verkefnið strax svo hægt sé að taka réttar ákvarðanir. Það liggur fyrir að ef menn ætla að fara að koma því inn í ríkisfjármálastefnuna verður það ekki gert nema henni verði breytt eða hv. þingmenn taki það að minnsta kosti til umhugsunar hvort æskilegra sé að fresta framkvæmd einhverra annarra bygginga, eins og til að mynda húss íslenskra fræða sem ég nefndi áðan. Það er mín prívatskoðun að það sé alger vitleysa að fara í þá framkvæmd. Það er ekki bæði sleppt og haldið og þess vegna er mikilvægt að menn geri það svona. Það er mjög skýrt og það sjá það allir sem vilja að í ríkisfjármálaáætluninni um að fara að greiða niður skuldir með skuldsetningu ríkissjóðs eins og hún er er algerlega útilokað að koma verkinu inn á þau ár sem er hugsanlega lagt upp með hér. Það er alger sjálfsblekking að halda öðru fram. Við verðum að fara að greiða niður skuldir ríkissjóðs nema, eins og reyndar er bent á, einhverjar aðrar framkvæmdir, hvort sem það eru vegaframkvæmdir eða samgönguframkvæmdir eða hverjar sem þær eru, séu látnar víkja eða ríkisfjármálaáætluninni sé breytt sem ég tel ekki skynsamlegt. Það er auðvitað stærsta áminningin að þegar við ræðum stærstu framkvæmd Íslandssögunnar, er sagt, eins og hæstv. ráðherra sagði áðan, til að reyna að tala kjark í þingmenn eða til að mönnum fallist ekki hendur að heildarkostnaðurinn samsvari vaxtagreiðslum ríkisins í eitt ár. Þannig er það. Ég hvet til þess að farið verði strax í að vinna þau grunngögn sem nauðsynleg eru til að hv. þingmenn geti tekið skynsamlegar ákvarðanir og átt eðlilegar rökræður.