141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.

618. mál
[20:53]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni andsvarið. Já, ég er svo sannarlega til í að beita mér fyrir því að þetta mál fái þann tíma og þann forgang sem það þarf í viðkomandi nefnd og að allar þær upplýsingar sem hv. þingmaður telur sig þurfa komi til nefndarinnar. Nema hvað?

Það er alveg rétt hjá þingmanninum að bygging þessa spítala er eitthvert mikilvægasta verkefnið sem við getum ráðist í fyrir íslenskt heilbrigðiskerfi. Þar erum við algjörlega sammála.

Varðandi það að verkefnin ættu að breytast og minnka, að starfsemi heilbrigðiskerfisins ætti ekki endilega öll að fara fram á Landspítalanum, getur verið mjög mikið til í því hjá hv. þingmanni. Bygging nýs spítala með fullkomnustu tækni, með einbýlum þannig að sýkingarhætta sé minni, mun einmitt stuðla að því. Ég veit að hugur hv. þingmanns til spítalans er góður og hann vill veg hans sem mestan. Ég get alveg lofað hv. þingmanni því að ég mun beita mér fyrir því gagnvart mínum samflokksmönnum að þeir geri allt sem þeir geta til að koma þessu máli áfram.