stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður segir: Nema hvað? Í hverju málinu á fætur öðru fá menn ekki tíma til að vinna málin. Hér eru hv. þingmenn sem hafa orð á sér fyrir að setja sig vel inn í hluti, eins og hv. þm. Ásbjörn Óttarsson, sem velta upp spurningu sem svar ætti fyrir löngu að vera komið við. Það eru nokkrir dagar eftir af þinginu og hv. þingmaður ætlar að keyra í gegn stjórnarskrárbreytingar og fiskveiðistjórnarfrumvarp, nema hann sé annarrar skoðunar sem ég vona að hann sé. Allur dagurinn í dag fór í að ræða að það átti að setja nærri milljarð í viðbót í Ríkisútvarpið.
Virðulegi forseti. Er meira en tal á bak við það að menn vilji vinna þetta þannig að fólk sé vel upplýst um hvað er á ferðinni? Er tryggt að þær áætlanir sem lagt er upp með standist, að engar þær breytingar hafi orðið sem geri það að verkum að forsendur standist ekki? Það þarf tíma í þetta og við höfum afskaplega lítinn tíma.
Ætlar hv. þingmaður að keyra í gegn stjórnarskrárfrumvarp og (Forseti hringir.) fiskveiðistjórnarfrumvarp og önnur þau frumvörp sem hér eru meðfram þessu? [Kliður í þingsal.]