141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.

618. mál
[22:56]
Horfa

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vona að hv. þingmaður hafi kynnt sér verkefnið ítarlega. Því er hægt að áfangaskipta. Því er hægt að skipta þannig að byggingar sem þjóna mismunandi markmiðum komi inn á mismunandi tímum. En til að þetta liggi ljóst fyrir ætla ég að lesa niðurlagið í umsögn fjárlagaskrifstofu. Þar segir, með leyfi forseta:

„Verði frumvarp þetta að lögum verður hlutafélaginu sem ríkið kom á fót vegna áforma um byggingu nýs Landspítala heimilað að standa að verkefninu í mynd hefðbundinnar opinberrar framkvæmdar.“ — Hefðbundinnar, opinberrar framkvæmdar, ég legg áherslu á það. „Í lögfestingunni felst þó ekki ákvörðun Alþingis um að heimila framkvæmdirnar né að veita fjárheimild til þeirra.“

Með þessu frumvarpi er ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur að stuðla að því og vinna að því áfram eins og hún hefur gert á undangengnum árum að allt sé gert sem í okkar valdi stendur til að hægt verði að fara út í þessa framkvæmd. (Gripið fram í.) Síðan verðum við að meta það þegar áætlunargerð er lengra komin hvort við komum henni fyrir innan ríkisfjármálaáætlunar og hvernig. Ég sem þingmaður, sem mun vonandi sitja hér á næsta þingi og allar líkur eru á, mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að svo geti orðið án þess að leggja óeðlilegar byrðar á ríkissjóð.