141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

stofnun opinbers hlutafélags um byggingu nýs Landspítala við Hringbraut í Reykjavík.

618. mál
[23:14]
Horfa

Siv Friðleifsdóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þjóðin er að eldast en hún mun gera það óháð því hvort við byggjum þetta nýja hús eða ekki, þannig að ég tel að það séu engin rök í málinu. Þegar þjóðin eldist verður meiri þrýstingur og meiri þungi í heilbrigðisþjónustunni. Þetta er mál sem allir hafa rosalegar áhyggjur af í hinum vestræna heimi, þ.e. færra ungt fólk ber uppi skattstofnana okkar og fleiri eldri borgarar þurfa meiri þjónustu, þetta er stórt vandamál sem allir horfast í augu við.

Þeim mun mikilvægara er að mínu mati að byggja þetta nýja sjúkrahús af því að það verður mikil pressa á heilbrigðiskerfinu í framtíðinni, sérstaklega varðandi fjárútlát. En við erum svo heppin, alla vega enn sem komið er, að hér er gríðarlega góð heilbrigðisþjónusta. Við erum með hæsta meðalaldur karla í dag, við höfum því miður lækkað í meðalaldri kvenna af því að önnur lönd hafa hækkað. Við erum með minnsta ungbarnadauða í heimi í dag þannig að við erum með alveg ótrúlega flottar lykiltölur og þetta verðum við verja.

Ég sé kannski ekki endilega þörf á að endurskilgreina heilbrigðisþjónustuna, ég átta mig ekki alveg á því hvað hv. þingmaður á við. En varðandi einkarekstur þá er mjög mikill einkarekstur í heilbrigðisþjónustunni í dag, mjög mikill. Að mínu mati þarf aðeins að endurskoða það. Það eru sérfræðilæknar sem ég vil taka til umræðu í því sambandi, þar er mjög mikill einkarekstur, og að mínu mati opinn krani á ríkissjóð. Hér getur fólk eiginlega sjúkdómsgreint sig sjálft og farið til sérfræðings og ríkið borgar meginhluta reikningsins og sjúklingurinn minni hlutann. Skattgreiðendur eru að borga mjög mikið í þessari þjónustu.

Ég vil að hér sé tekið upp, eins og gert er á öðrum Norðurlöndum, tilvísunarkerfi, valfrjálst tilvísunarkerfi. Ef þú labbar beint til sérfræðings þá borgarðu reikninginn í topp en ef þú ferð með tilvísun borgarðu lægra gjald. Það er enginn hliðvörður í kerfinu í dag og það er skaði að mínu mati.