141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

starfsmannaleigur.

606. mál
[23:25]
Horfa

velferðarráðherra (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um starfsmannaleigur, með síðari breytingum.

Ég vil geta þess þegar í upphafi að frumvarpið er nú lagt fram í annað sinn en það var lagt fram á síðasta þingi án þess að fjallað væri um það efnislega. Sérlög um starfsmannaleigur hafa gilt hér á landi frá árinu 2005 en þá þótti nauðsynlegt að setja ákveðnar lágmarksreglur um starfsemi starfsmannaleigna hér á landi í ljósi þess að á árin þar á undan hafði færst í vöxt að íslensk fyrirtæki nýttu sér þjónustu þeirra við leit að starfsfólki. Í lögunum er að finna almenn ákvæði um starfsemi starfsmannaleigna en þremur árum eftir að þau tóku gildi samþykkti Evrópusambandið sérstaka tilskipun um starfsmannaleigur sem síðan var tekin upp í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið. Til þess að unnt verði að líta svo á að tilskipunin hafi verið innleidd hér á landi þykir nægjanlegt að gerðar verði tilteknar breytingar á lögum um starfsmannaleigur þar sem ákvæði laganna eru að miklum hluta til samhljóða efni tilskipunarinnar.

Í frumvarpinu eru því lagðar til nauðsynlegar breytingar á lögum um starfsmannaleigur í því skyni að tryggja að tilskipun geti að fullu talist innleidd hér á landi. Líkt og komið hefur fram eru ákvæði laga um starfsmannaleigur að miklum hluta til efnislega samhljóða ákvæðum tilskipunarinnar. Í aðfaraorðum hennar kemur meðal annars fram að henni sé ætlað að setja ramma um kjör og réttindi starfsmanna starfsmannaleigna um leið og tekið er tillit til þess að fyrirtæki þurfi ákveðinn sveigjanleika við ráðningu starfsfólks. Í aðfaraorðunum er jafnframt lögð áhersla á að ótímabundnir ráðningarsamningar skuli vera ríkjandi ráðningarform og ráðningarkjör starfsmanna starfsmannaleigna skuli ekki vera lakari en þeirra starfsmanna sem hafa verið ráðnir beint til hlutaðeigandi notendafyrirtækja.

Meginreglan á íslenskum vinnumarkaði er sú að starfsmenn eru ráðnir ótímabundið beint til vinnuveitanda, enda ríkir ákveðinn sveigjanleiki í ráðningum sem ætlað er að auðvelda fyrirtækjum að bregðast við sveiflum í starfsemi þeirra. Í greinargerð með frumvarpi því er varðar lög um starfsmannaleigur kemur meðal annars fram að lögunum sé ekki ætlað að breyta þeirri óskráðu reglu. Ég legg því áherslu á að hið sama gildi um þetta frumvarp.

Ég vil jafnframt undirstrika að nú sem endranær er það sameiginlegur vilji minn og aðila vinnumarkaðarins að ótímabundnir ráðningarsamningar starfsmanna beint við vinnuveitendur sína verði áfram ríkjandi ráðningarform hér á landi. Sá vilji aðila vinnumarkaðarins var meðal annars áréttaður í bókun með kjarasamningi Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á almennum vinnumarkaði frá 5. maí vorið 2011. Þar var enn fremur undirstrikað að samkvæmt lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda þar ákveði kjarasamningar lágmarkskjör á íslenskum vinnumarkaði og er ekki verið að hrófla við þeirri grundvallarreglu með frumvarpinu. Enn fremur var í fyrrnefndri bókun tekið sérstaklega fram að meginreglan um jafna meðhöndlun starfsmanna starfsmannaleigna, sem kemur fram í þeirri tilskipun Evrópusambandsins sem um ræðir hér, yrði lögfest hér á landi og að miðað yrði við að á þeim tíma sem starfsmenn starfsmannaleigu starfa hjá notendafyrirtæki skuli ráðningarkjör þeirra vera að minnsta kosti þau sem hefðu gilt ef þeir hefðu verið ráðnir beint til viðkomandi fyrirtækis til að sinna sama starfi. Þar yrði vísað til raunverulegra launakjara hjá notendafyrirtækinu hvernig sem þau væru ákvörðuð og hvernig sem þau væru greidd.

Hæstv. forseti. Í ljósi framangreinds er í frumvarpi þessu lagt til að nánar verði skilgreint í lögum um starfsmannaleigur hvað teljist vera notendafyrirtæki og hverjir teljist vera starfsmenn starfsmannaleigu. Enn fremur er lagt til að sérstaklega verði kveðið á um í lögunum að á þeim tíma sem starfsmaður starfsmannaleigu sinnir störfum fyrir notendafyrirtæki skuli hann að lágmarki njóta sömu launa og annarra starfskjara og hann hefði notið hefði hann verið ráðinn beint til notendafyrirtækis. Er það í samræmi við framangreinda meginreglu að jafna meðhöndlun starfsmanna sem kemur fram í ákvæðum þeirrar tilskipunar Evrópusambandsins um starfsmannaleigur sem um ræðir.

Jafnframt er í frumvarpinu lagt til að áréttað verði í lögunum að á þeim tíma sem starfsmaður starfsmannaleigu sinnir störfum fyrir notendafyrirtæki skuli veita honum sama aðgang að hvers konar aðbúnaði og sameiginlegri aðstöðu í notendafyrirtækinu sem starfsmenn notendafyrirtækisins njóta nema mismunandi meðferð verði réttlætt á grundvelli málefnalegra ástæðna.

Í samræmi við meginreglur um ótímabunda ráðningu er í frumvarpinu enn fremur lögð áhersla á mikilvægi þess að veita starfsmanni starfsmannaleigu tímanlega upplýsingar um störf sem losna innan notendafyrirtækisins til að hann hafi sömu tækifæri til að vera ráðinn ótímabundið og aðrir starfsmenn. Í sama tilgangi sem og í samræmi við efni þeirrar tilskipunar sem um ræðir er jafnframt lagt til í frumvarpinu að starfsmannaleiga leitist við að greiða fyrir aðgangi starfsmanns síns að starfsmenntun og starfsþjálfun. Þá gerir umrædd tilskipun ráð fyrir að notendafyrirtæki tryggi starfsmönnum starfsmannaleigna öryggi, aðbúnað og hollustuhætti á þeim tíma sem þeir sinna störfum fyrir þau með sama hætti og öðrum starfsmönnum þeirra.

Í því sambandi vil ég árétta að litið er svo á að lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum gildi um starfsmenn starfsmannaleigna þegar þeir eru að störfum fyrir notendafyrirtæki og er ekki gert ráð fyrir breytingum að því leyti verði frumvarpið að lögum.

Hæstv. forseti. Líkt og komið hefur fram er megintilgangur frumvarpsins að innleiða þau ákvæði tilskipunar Evrópusambandsins við starfsmannaleigur sem ekki verða þegar talin innleidd með lögum um starfsmannaleigur. Að mínu mati mun ákvæði frumvarpsins jafnframt styrkja og bæta þá löggjöf sem þegar er til staðar hér á landi í tengslum við starfsemi starfsmannaleigna. Verði frumvarpið óbreytt að lögum er tilskipunin þannig að fullu innleidd hér á landi að mínu mati og sú vernd sem henni er ætlað að veita starfsmönnum starfsmannaleigna þar með einnig tryggð hérlendis.

Að lokinni umræðunni legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar.