141. löggjafarþing — 88. fundur,  26. feb. 2013.

áætlun um alþjóðlega þróunarsamvinnu Íslands 2013--2016.

582. mál
[23:55]
Horfa

utanríkisráðherra (Össur Skarphéðinsson) (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er misskilningur hjá hv. þingmanni. Framlögin sem þessi áætlun byggir á voru samþykkt í upphafi kjörtímabilsins. Ég er að leggja fram endurskoðaða áætlun eins og mér ber og eins og ég greindi frá í framsögu minni er ekki um neinar sérstakar breytingar að ræða. Til að rifja það upp fyrir hv. þingmanni greiddi hver einasti þingmaður Sjálfstæðisflokksins, væntanlega líka hv. þingmaður hafi hann verið þá í salnum, atkvæði með áætluninni á sínum tíma.