141. löggjafarþing — 89. fundur,  6. mars 2013.

tilkynning um skrifleg svör.

[10:32]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hafa tvö bréf, annars vegar frá innanríkisráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 1015, frá Eygló Harðardóttur, um kærur um ofbeldi gegn börnum, og hins vegar frá velferðarráðuneytinu um frestun á því að skriflegt svar berist við fyrirspurn á þskj. 927 frá Vigdísi Hauksdóttur, um nefndir, ráð, verkefnisstjórnir og starfshópa. Þar sem ekki hefur tekist að afla nauðsynlegra gagna til að veita fullnægjandi svör við þessum fyrirspurnum fara ráðuneytin þess á leit að fá frest til 20. mars til að svara þeirri fyrir og 8. mars til að svara þeirri seinni.