neytendalán.
Virðulegi forseti. Neytendavernd á fjármálamarkaði á Íslandi er mjög ábótavant. Það er nokkuð sem við erum búin að ræða um allt kjörtímabilið en því miður hefur það fyrst og fremst verið á umræðustigi en ekki framkvæmdastigi.
Þó að margt sé ágætt í þessu frumvarpi og að upplýsingagjöf til neytenda muni til dæmis batna við þetta erum við samt ekki að taka á mestu meinsemdinni. Það er mjög dapurlegt eftir allan þennan tíma, alla þessa umræðu og allan þennan vanda. Ef það er eitthvað sem öllum er ljóst er það það að hér er brotalöm og við erum ekki að bæta úr.
Margt er til bóta en ég tel samt að við þurfum að ræða þetta mál, sem ég ætla ekki að fara nánar í hér, í hv. nefnd milli (Forseti hringir.) umræðna. Við munum endanlega taka afstöðu til þessa máls við lokaafgreiðslu og ég mæli með því að við sitjum hjá við þessa afgreiðslu.