141. löggjafarþing — 89. fundur,  6. mars 2013.

neytendalán.

220. mál
[15:07]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Yfirlýstur tilgangur þessa frumvarps er að tryggja neytendavernd vegna lánastarfsemi. Ég fagna auknu eftirliti með smálánum, sem kemur fram í frumvarpinu, og auknum kröfum um form og efni neytendalána og upplýsingaskyldu lánveitenda.

Hins vegar tel ég þetta mál ekki fullrætt og hef í hyggju að kalla aftur breytingartillögur mínar við málið þannig að þær komi til atkvæðagreiðslu við 3. umr. Vonandi getur meiri hluti nefndarinnar tekið undir þær því að ég tel að þetta mál sé ekki fullrætt og að enn séu mjög stórar spurningar um það hvort við séum að fara rétta leið með þessu máli.