141. löggjafarþing — 89. fundur,  6. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[16:12]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þingmaður svaraði ekki spurningunni um hvernig vantrauststillagan sem hann lagði fram í síðustu viku var tengd því að þetta mál næði fram og stuðningur við ríkisstjórnina þar af leiðandi tengdur því máli. Hann svaraði því ekki hvort hann mundi leggja fram vantrauststillögu aftur eða hvort hún hafi bara verið skot út í bláinn.