141. löggjafarþing — 89. fundur,  6. mars 2013.

stjórnarskipunarlög.

415. mál
[16:33]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (andsvar):

Herra forseti. Eitt af því sem ég gerði athugasemd við þær hugmyndir sem við erum að ræða í dag og koma upphaflega frá stjórnlagaráði er að búið er að flytja svo mörg atriði úr lögbókinni í stjórnarskrá. Stjórnarskrá á að vera mjög stutt. Hún á að vera hnitmiðuð og hún á aðallega að fjalla um mannréttindi. Hún á að fjalla um mannréttindi. Stjórnarskráin á ekki að fjalla um ómerkilega hluti. (MT: Ríkisendurskoðun …) Hér var nú sagt að þetta væri ekki stórt mál. (Gripið fram í.) Ég er á móti því að verið sé að nefna ríkisendurskoðanda eða fleiri persónur í stjórnarskránni.

Ég vil að stjórnarskráin fjalli aðallega um mannréttindi og hvernig við tryggjum þau með því að stofna ríki og annað slíkt og hún sé mjög stutt og gagnorð. (Gripið fram í.) Þess vegna tel ég að breytingar á stjórnarskrá eigi alltaf að varða almenning og kjósendur miklu (Gripið fram í.) þannig að þeir hafi virkilega mikinn áhuga á því að fara á kjörstað og greiða atkvæði þegar gerðar eru breytingar á til dæmis mannréttindum sem varða hvern einasta mann þegar í harðbakkann slær. Stjórnarskráin á að mínu mati, og ég hef margoft nefnt það í þessari umræðu sem er búin að vera ansi löng, að vera aðallega um mannréttindi og hvernig þau eru tryggð.