141. löggjafarþing — 91. fundur,  7. mars 2013.

lengd þingfundar.

[11:09]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? (Gripið fram í: Já.) — Óskað er eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta.

Gengið er til atkvæða um tillögu forseta og er atkvæðagreiðslan hafin. Hv. þm. Pétur H. Blöndal gerir grein fyrir atkvæði sínu. (PHB: Nei.) Voru það fleiri? (Gripið fram í.) Atkvæðagreiðslan er hafin. (PHB: Ég bað um orðið …)