141. löggjafarþing — 91. fundur,  7. mars 2013.

lífeyrisréttindi almannatrygginga og félagslegur stuðningur.

636. mál
[18:25]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður kemur þarna inn á efni sem ég ætlaði einmitt að ræða í seinni ræðu minni, sem er mikilvægi forgangsröðunar. Þetta frumvarp sýnir okkur betur en flest önnur frumvörp sem við höfum rætt á þinginu á þessu kjörtímabili hversu brýnt það er í fyrsta lagi að forgangsraða, að sætta sig við að við núverandi aðstæður sé ekki hægt að ráðast í öll þau verkefni sem stjórnarflokkarnir hafa áhuga á að innleiða til að uppfylla pólitíska sýn sína, hugmyndafræði, umfram það sem hlýtur að vera grundvallarhugmyndafræði félagshyggjuflokka, að standa vörð um velferðarkerfið.

Ég gaf mér það eiginlega þegar ríkisstjórnin bað um að hún yrði kölluð norræna velferðarstjórnin að því fylgdi að hún mundi forgangsraða í þágu velferðarkerfisins, í þágu eldri borgara, öryrkja og sjúklinga. En, nei, annað kom nú á daginn eins og sjá má af því að þessir hópar hafa mátt þola hvað harkalegastan niðurskurð á kjörtímabilinu og það er auðvitað mjög dapurlegt að fólki skuli hafa verið gefnar svo falskar væntingar, vegna þess að eins og ég nefndi áðan kynntu þessir flokkar sig á þann hátt í síðustu kosningabaráttu og eftir að ríkisstjórnin var mynduð að þetta væru þau mál sem forgangsraðað yrði fyrir.

Það var ekki gert, þvert á móti. Annað sem vantaði upp á var að byrja að vinna að framtíðarsýninni í þessum málum í tæka tíð eins og við sjáum af því að við ræðum þetta mál nú þegar þinginu er að ljúka.