141. löggjafarþing — 92. fundur,  8. mars 2013.

frumvarp um staðgöngumæðrun.

[10:48]
Horfa

velferðarráðherra (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég get tekið undir með þeim sem hér var með fyrirspurn, hv. þm. Ragnheiði Elínu Árnadóttur, sem hefur verið mikill hvatamaður að þessu máli. Ég hef stutt hana í því að þetta mál nái fram að ganga og hef ekki dregið lappirnar varðandi framgang þess heldur hef ég ýtt á eftir verkefninu. Þó að það hafi verið umdeilanlegt með hvaða hætti ætti að fara í þetta verkefni og skiptar skoðanir hafi verið um það þá hafa fyrirmælin verið alveg skýr, að sjálfsögðu, að fylgja þeirri þingsályktunartillögu sem samþykkt var. Það er ekki annað hægt en harma hvað þetta hefur tekið langan tíma og þótt ég hafi ekki akkúrat upplýsingar um hvað er nákvæmlega að gerast í dag eða í gær þá er ekkert langt síðan ég gekk eftir því að þessi hópur héldi áfram og skilaði vinnu sinni sem allra fyrst.

Hv. þingmanni er líka kunnugt um að í samráði við þá sem hér höfðu barist fyrir málinu var leitað til sérfræðinga og komið á tengslum út í heim og það er nákvæmlega eins og hv. þingmaður bendir á að allir hafa viljað standa vel að þessu máli og viljað vanda til verka. Ég tek undir með hv. þingmanni að við þurfum (Forseti hringir.) einmitt að koma þessu út í umræðuna aftur áður en málið fer í endanlega afgreiðslu í þinginu.