141. löggjafarþing — 92. fundur,  8. mars 2013.

launamál slitastjórna.

[11:00]
Horfa

forsætisráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir) (Sf):

Á þeim fjórum árum sem ég hef gegnt starfi forsætisráðherra höfum við hv. þingmaður iðulega skipst á skoðunum úr ræðustól. Ég held að næstum í 100% tilvika höfum við ekki verið sammála. Þess vegna fagna ég því mjög núna þegar þetta er sennilega minn síðasti eða næstsíðasti (Gripið fram í.) fyrirspurnatími að ég fái hól frá engum öðrum en [Hlátur í þingsal.] hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni. Ég þakka fyrir það og mun geyma það í minningunni, hv. þingmaður.