141. löggjafarþing — 92. fundur,  8. mars 2013.

100 ára afmæli kosningarréttar íslenskra kvenna 19. júní 2015.

567. mál
[17:45]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Það er með mikilli ánægju sem ég mæli fyrir þessu nefndaráliti. Það er stutt þannig að ég ætla að lesa það, með leyfi forseta. Þetta er tilefni til tillögu til þingsályktunar um hvernig minnast skuli 100 ára afmælis kosningarréttar íslenskra kvenna 19. júní 2015.

Hér segir, virðulegi forseti:

„Lagt er til að í tilefni af 100 ára afmæli kosningarréttar og kjörgengis kvenna 19. júní 2015 verði forsætisnefnd Alþingis falið að kalla saman til undirbúningsfundar fulltrúa sem flestra samtaka íslenskra kvenna, svo og stofnana sem fást við jafnréttismál kvenna og karla, til að ræða hugmyndir sem unnið yrði að á hátíðarárinu. Fulltrúunum er ætlað að kjósa fimm manna framkvæmdanefnd sem annist frekari undirbúning fyrir afmælisárið 2015. Þá mun forsætisnefnd einnig sjá um að ráða framkvæmdastjóra verkefnisins og annað starfslið eftir þörfum, sjá framkvæmdanefnd og framkvæmdastjóra fyrir starfsaðstöðu og undirbúa tillögur um fjárframlög til verkefnisins 2013–2015.

Fram kemur í greinargerð tillögunnar að 31. mars 2012 hafi forseti Alþingis boðað fulltrúa kvenna- og jafnréttissamtaka á Íslandi til fundar til að reifa hugmyndir um hvernig væri viðeigandi að halda upp á þessi merku tímamót í sögu landsins. Á fundinum kom fram mikill áhugi á því að minnast tímamótanna með veglegum hætti. Með hliðsjón af framansögðu vísar nefndin til hátíðarhalda sem haldin voru árið 2011 til að minnast 200 ára fæðingarafmælis Jóns Sigurðssonar. Þar veitti Alþingi 94,8 millj. kr. í verkefnið árin 2008–2011. Nefndin áréttar þó að umfang hátíðarhalda og fjöldi viðburða muni ráðast af því fjármagni sem Alþingi samþykkir að veitt verði til verkefnisins í fjárlögum eða fjáraukalögum.“

Nefndin var einhuga í þessu máli og leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Þeir sem skrifa undir þetta eru hv. þm. Björgvin G. Sigurðsson formaður, Skúli Helgason, Þráinn Bertelsson, Ólafur Þór Gunnarsson, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Siv Friðleifsdóttir og Birgitta Jónsdóttir.