100 ára afmæli kosningarréttar íslenskra kvenna 19. júní 2015.
Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hefur komið fram að það sé jákvætt og mikilvægt að ræða þessa tillögu til þingsályktunar um hvernig minnast skal 100 ára afmælis kosningarréttar íslenskra kvenna 19. júní 2015.
Mín skoðun, virðulegi forseti, er sú að við verðum að minnast þess að ekki sé lengra síðan helmingur Íslendinga, konur, fékk kosningarrétt, það þótti ekki sjálfsagt. Það má aldrei vera þannig að við förum að líta á kosningarréttinn, kosningarrétt kvenna eða karla, sem sjálfsagðan hlut. Þetta var eitthvað sem þurfti að berjast fyrir og við eigum að sýna því virðingu.
Ég tel líka jákvætt að við ætlum að kalla saman til undirbúningshópa til undirbúningsfundar fulltrúa sem flestra samtaka íslenskra kvenna svo og stofnana sem fást við jafnréttismál kvenna og karla til að safna hugmyndum og gera tillögur um hvernig skal minnast þessara tímamóta. Ég mundi vilja leggja eina hugmynd í púkkið. Við framsóknarmenn stóðum að verkefni á sínum tíma og það væri kannski gaman að geta staðið hér og talið að ekki væri ástæða til að endurvekja það verkefni, en ég tel fyllilega ástæðu til þess og það væri raunar við hæfi í tilefni 100 ára afmælisins að við mundum fara aftur af stað með sérstakt verkefni á vegum hins opinbera til þess að hvetja konur til þátttöku í stjórnmálum. Það gekk mjög vel þegar ríkisstjórnin fór af stað með svona verkefni á sínum tíma en ég held að enn á ný sé tími til þess að fara af stað og ekki hvað síst hvað varðar þátttöku í sveitarstjórnum. Ýmislegt virðist gera það að verkum að erfiðara hefur verið fyrir konur að taka þátt í virku starfi í stjórnmálum. Við erum að tala um kosningarréttinn sjálfan en samt er líka mikilvægt að konur bæði nýti kosningarréttinn og séu virkir þátttakendur í stjórnmálastarfi.
Það er ekki langt síðan við framsóknarkonur fjölmenntum á ráðstefnu um fyrstu framsóknarkonuna sem var kosin hér á þing, Rannveigu Þorsteinsdóttur. Það var áhugavert fyrir mig og aðra þá sem voru þarna að heyra þau erindi sem þar voru haldin um baráttuna sem hún og aðrar konur háðu fyrir jafnrétti og jafnri stöðu, þó að kosningarrétturinn væri kominn. Þar vil ég sérstaklega minna á kvenfélögin sem skiptu verulegu máli við að vinna að jafnri stöðu kynjanna.
Ályktunin er því jákvæð. Ég vil líka taka undir það sem hefur verið rætt hér, að það skiptir máli að fjármagn sé tryggt í þetta verkefni þegar við ætlum að halda upp á og minnast þessa stóra viðburðar, 100 ára afmælis kosningarréttar íslenskra kvenna 2015. Við verðum að standa vel að þessu þannig að ég hvet til þess að þeir sem munu fara með fjárveitingavald á næstunni, þegar liggja fyrir tillögur um hvernig skal standa að þessu, tryggi fjármagn til þess að hægt sé gera þetta myndarlega vegna þess að þetta er ekki sjálfgefið. Við verðum að minnast þess að svo var ekki, en það á að vera þannig að við getum gengið að jafnrétti kynjanna sem eðlilegu og réttu. Það er að mínu mati mjög leitt að árið 2013 skulum við enn þá þurfa að berjast fyrir jöfnum launum, að draga úr kynbundnum launamun, að enn skuli koma upp atvik þar sem stjórnvöld brjóta jafnréttislög. Jafnrétti kynjanna virðist reynast okkur erfitt að ná.
En dropinn holar steininn. Hluti af því er að við umgöngumst þennan merka atburð af virðingu og því vil ég fagna því að þessi tillaga sé komin til síðari umræðu og verður vonandi samþykkt fljótlega á Alþingi.