141. löggjafarþing — 92. fundur,  8. mars 2013.

virðisaukaskattur.

542. mál
[18:54]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. formanni efnahags- og viðskiptanefndar fyrir framsöguna. Af því að ég á ekki sæti í nefndinni vildi ég afla upplýsinga annars vegar um hvort það væri mat þeirra fyrirtækja og samtaka sem starfa á þessum markaði að ívilnanirnar sem leiða má af frumvarpinu sem hér um ræðir séu fullnægjandi til þess að tryggja stöðu þeirra og hins vegar hvort fram hafi komið í nefndinni hvað þarna er um að ræða mörg fyrirtæki og mikinn iðnað.

Nú höfum við séð fréttir af fyrirtækjum af þessu tagi en maður áttar sig ekki alveg á því hversu umfangsmikill þessi iðnaður er.