lagaumhverfi búseturéttar- og samvinnufélaga.
Virðulegur forseti. Í sporum hæstv. velferðarráðherra hefði ég nú sleppt því síðasta, nú þegar við stöndum hér á síðustu dögum þingsins eftir fjögurra ára kjörtímabil og svörin eru svo rýr sem raun ber vitni. Svo virðist hæstv. velferðarráðherra vera búinn að gleyma því, eins og hæstv. forsætisráðherra sem var þá félagsmálaráðherra, að Samfylkingin hefur haft völdin í þessum málaflokki síðastliðin sex ár og hefur því haft nægan tíma til að grípa til þeirra úrræða sem hún hefði talið nauðsynleg og líkleg og hefði átt að vera fyrir löngu búin að skipa nefnd, í stað þess að bíða nú eftir að slík nefnd skili af sér næsta haust. En það er ljóst að ekki verður ekki tekið á þessum málum fyrir lok þessa kjörtímabils ef ég skildi hæstv. ráðherra rétt, hvorki varðandi styrkingu búseturéttarins né verða lagðar fram raunverulegar tillögur um skuldamál heimilanna, þrátt fyrir að við (Forseti hringir.) framsóknarmenn höfum ítrekað lagt fram tillögur hér í þinginu á síðastliðnum fjórum árum.