141. löggjafarþing — 98. fundur,  11. mars 2013.

lagaumhverfi búseturéttar- og samvinnufélaga.

[16:14]
Horfa

velferðarráðherra (Guðbjartur Hannesson) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég get fullvissað hv. þingmann um að hver einasta tillaga sem Framsóknarflokkurinn hefur lagt fram hefur verið skoðuð og nánast hver og ein dæmd sem eitthvað annað en hún átti að vera, einhver einföld patentlausn. Því miður. (Gripið fram í.)

Svar mitt varðandi þessa nefnd snerti eingöngu lagaumhverfi búsetu- og samvinnufélaga, enda var spurningin um það. Það er búið að vinna nefndarvinnuna með hitt, en það hefur reynst þrautin þyngri að endurreisa Íbúðalánasjóð eftir þær skelfingarbreytingar sem voru gerðar á honum 2004. (Gripið fram í.) Við höfum verið að vinna í því og það hefur ekki verið auðvelt.

Við erum líka að fá á okkur búsetuform eins og t.d. það sem kom upp varðandi Eir þar sem menn hafa verið að nota lausnir sem því miður var ekki lagaumhverfi í kringum. Fólk var látið skuldbinda sig til kaupa á húsnæði án þess að hafa nokkrar tryggingar fyrir því að menn gætu staðið við það. Þau eru ansi mörg verkefnin sem við höfum (Forseti hringir.) orðið að vinna úr. Það kom ágætlega fram í vantraustsumræðunni áðan að það er einmitt einkenni á þessari ríkisstjórn að hún hefur seiglast í gegnum þetta, fundið lausnir og fengið stuðning til að halda áfram. Það ætlum við að gera eins lengi og við getum og við (Forseti hringir.) fáum vonandi umboð til að halda áfram í framhaldi af kosningum.