Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ég held að við séum sammála um mikilvægi þess að Ríkisútvarpið hafi sjálfstæði. Ég hef hins vegar dálítið kallað eftir því að fá einhverjar skýringar eða aðrar hugmyndir að leiðum til að fullnægja þessu markmiði sem við erum sammála um að skipti máli, að Ríkisútvarpið sé sjálfstætt og ekki háð jafnvel tilviljanakenndum ígripum hins pólitíska valds. Þetta er sú tillaga sem hefur verið uppi á borðinu, ekki bara á þessu þingi heldur því síðasta sömuleiðis, og mig undrar að ekki hafi komið fram neinar aðrar hugmyndir.
Það að hafa Ríkisútvarpið á fjárlagalið er sama marki brennt. Það er sannarlega hægt að breyta þeim fjárlagalið og þeim upphæðum sem koma fram í fjárlagafrumvarpinu í meðförum þingsins í fjárlagavinnunni til hækkunar eða lækkunar. Það vandamál hverfur ekki þó að Ríkisútvarpið fari inn á fjárlagaliðina en það hefur verið hald manna að þar með væri mun viðurhlutaminna fyrir meiri hlutann á hverjum tíma að hafa bein afskipti af því hvernig fjárhag stofnunarinnar yrði hagað á komandi ári. Við eigum að reyna að koma okkur inn í það umhverfi að þessar lykilstofnanir okkar í samfélaginu hafi víðara sjónarhorn, geti skipulagt sig lengra fram í tímann með rammafjárlögum og þurfi ekki að vera ofurseldar því að hafa jafnvel eingöngu örfáar vikur eða fáa mánuði til að átta sig því úr hverju þær hafa að spila á komandi ári.