141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[11:51]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar í grunninn að spyrja um tvennt. Í fyrsta lagi er verið gera ákveðnar breytingar á þætti Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði og ef ég skil þetta rétt er verið að tala aðallega um kostun á þáttum og þess háttar. Mig langar að spyrja hvort hv. þingmaður telji að ganga hefði þurft lengra í því að takmarka þátttöku Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði, og um leið hvort ekki sé hætta á fákeppni á auglýsingamarkaði ef Ríkisútvarpið er sett til hliðar á þeim vettvangi, þar sem er ekkert sérstaklega fjölbreytt úrval í dag af ljósvakamiðlum að mínu viti. Fyrri spurningin lýtur að þessu.

Í öðru lagi langar mig að spyrja út í þá breytingartillögu sem hv. þingmenn Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Guðlaugur Þór Þórðarson leggja fram, þ.e. að minnst 20% af fjárveitingum til dagskrárgerðar Ríkisútvarpsins skuli varið til kaupa á innlendu efni af sjálfstæðum framleiðendum. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún muni hvert hlutfallið er í dag. Ég vil líka velta því upp hvort þetta sé sett fram m.a. í þeim tilgangi að hvetja innlenda framleiðendur til að framleiða efni fyrir sjónvarp og tryggja þeim þá einhvern aðgang að fjármagni og sýningartímum á því efni. Það er vissulega fagnaðarefni ef við náum að framleiða meira af efni sjálf þannig að þessi tillaga lítur ágætlega út varðandi það. En ég velti fyrir mér hvort það sé nýmæli að skylda Ríkisútvarpið til að setja ákveðna prósentutölu í innlenda hlutann.