Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Frú forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, heildarlög. Ég get tekið undir margt af því sem fram kom í ræðu hv. þm. Birgis Ármannssonar og deili ýmsu með honum, sérstaklega í þeim málefnum þar sem hann ræddi um skipan valnefndarinnar svokölluðu.
Það var þó annað sem gerði það að verkum að ég kem hér upp og vil fá að spyrja þingmanninn, það er sú breytingartillaga sem kemur frá hv. þm. Siv Friðleifsdóttur. Með leyfi forseta hljóðar hún svona:
„Einnig skal Ríkisútvarpið veita öllum gildum framboðum til Alþingis jafnan útsendingartíma til að kynna stefnumál sín án endurgjalds.“
Ég heyrði það í máli þingmannsins að hann hafði svo sem ekki mikla skoðun á breytingartillögunni. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það sé raunverulega skoðun hans að vera ekki með skoðun á málinu, eða hvað hann sér athugavert við breytingartillöguna. Það er nú fyrst og fremst það sem mig langar til þess að fá að vita og hvort það sé stefna Sjálfstæðisflokksins í þessu máli.