141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[14:43]
Horfa

Birgir Ármannsson (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna og verð að játa það að það er alveg rétt sem kom fram í máli hv. þingmanns að ég hef ekki mjög sterkar skoðanir á þessu. Þess vegna treysti ég mér í raun hvorki til þess að mæla með eða gegn tillögu hv. þm. Sivjar Friðleifsdóttur.

Ástæðan fyrir því að ég hef vægari skoðanir eða minni sannfæringu í þessu tiltekna máli en ýmsu öðrum sem varða þetta frumvarp er kannski sú að ég held að jafnvel þó að sú skylda yrði lögð á Ríkisútvarpið að útvega ókeypis útsendingartíma fyrir öll þau framboð sem í gildi teljast, er ég ekki viss um að það mundi breyta miklu. Auðvitað yrði af því einhver kostnaður og að einhver tími í dagskrá útvarps og sjónvarps færi undir þetta, en ég er ekki viss um að það mundi breyta svo miklu til eða frá, hvorki fyrir framboðin né fyrir kjósendur í landinu, vegna þess að ég held að markvissar fréttaskýringar, umræðuþættir og annað þess háttar séu betur til þess fallnir að gera kjósendum grein fyrir einstökum framboðum en endilega einhver ókeypis útsendingartími sem þau hafa sjálf til ráðstöfunar.

Ég óttast að það yrði ekkert mjög spennandi sjónvarpsefni svona almennt talað, hvorki frá mínum flokki né nokkrum öðrum flokki, þannig að ég hef það á tilfinningunni að þeim tíma væri ekkert endilega mjög vel varið.

Á hinn bóginn, þó að ég hafi ekkert voðalega trú á þeirri hugmynd sem er að finna í breytingartillögu hv. þm. Sivjar Friðleifsdóttur, hef ég heldur engar sérstakar áhyggjur af henni. Ég held að það yrði ekki stórfenglegt vandamál þótt tillaga hv. þingmanns næði fram að ganga og boðið yrði upp á frían útsendingartíma. Ég held að engin sérstök hætta sé í því fólgin eða eitthvað slíkt, en ég er ekki viss um að frír (Forseti hringir.) útsendingartími sé rétta leiðin til þess að stýra kosningaumfjöllun í fjölmiðli.