141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[15:34]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er rétt að það sjónarmið hefur verið rætt talsvert í nefndinni. Það kemur fram í nefndarálitinu að þau sjónarmið hafi verið á lofti að hlutverk Ríkisútvarpsins væri skýrt of vítt og væri þar af leiðandi ekki nógu nákvæmt, eins og hv. þingmaður kom inn á. Það væri til mikils ætlast en þrátt fyrir að í frumvarpinu sé gerð tilraun til þess í einum fjórum köflum og sjö greinum í hverjum kafla, eða undirkafla, að skilgreina ýmsa þætti starfsemi Ríkisútvarpsins verði það engu að síður takmarkað.

Ég verð að segja alveg eins og er, eins og ég kom aðeins inn á í máli mínu, að einn hluti þess að skilgreina Ríkisútvarpið sem fjölmiðil í almannaþágu hlýtur að vera að skilgreina starfsemi þess hringinn í kringum landið þannig að fréttaflutningur og umfjöllun af því sem er að gerast í hinum dreifðu byggðum komi líka inn þar. Ég hef haldið því fram að það sé mjög áhugavert efni, líka fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Ég tek undir það með hv. þingmanni að á einstaka stundum finnst manni menn í áhrifastöðum, jafnvel innan Ríkisútvarpsins, bregðast svolítið illa við þeim umkvörtunum sem m.a. við þingmenn dreifbýlisins höfum haft fram að færa hvað það varðar. Þeir hafa stundum litið svo á að við séum að blanda okkur í eitthvað sem komi okkur ekki við, starfsmannastefnu eða innanhússmál, þegar við erum kannski fyrst og fremst að tala um að okkur finnst eðlilegt að Ríkisútvarpið fjalli á eins sambærilegan hátt og hægt er um hinar dreifðu byggðir.

Ef við hugsum okkur það efni á hinum fullkomna samkeppnismarkaði held ég að menn hafi áttað sig á því að landsmenn allir, líka þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu, hafa einmitt áhuga á efninu og það er áhugavert sjónvarpsefni.