141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[15:38]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég get tekið undir andsvar hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar hvað þetta varðar. Það sem ég var að reyna að koma á framfæri í máli mínu er einmitt að ég held að sumir þættir og þá kannski fyrst og fremst í sjónvarpi af því að við erum að horfa svolítið á það — og ég tek undir það með hv. þingmanni að útvarp, hvort sem er Rás 1 eða Rás 2, sérstaklega auðvitað Rás 1, sinni þeim þætti býsna vel með þáttagerð og viðmælendum hvaðanæva af landinu og áhugaverðu efni oft og tíðum — hafa verið heldur fátæklegir. Þeir hafa náttúrlega fyrst og fremst snúist um fréttir og þá fréttaritara. Ég kem af Suðurlandi og við sveitarstjórnarmenn börðumst fyrir því að svæðisútvarp yrði sett á laggirnar og miðstöð Ríkisútvarpsins á Suðurlandi. Það gekk hægt eftir, það var komið í alla aðra landshluta og var svo loksins sett á laggirnar en þá hófst niðurskurður vegna fjárhagslegra aðstæðna, eins og hv. þingmaður nefndi. Fréttaritarar voru skildir eftir en seinna voru þeir teknir líka og þá segir maður allt í lagi. Auðvitað nöldrar maður og kemur með umkvartanir og vonast til að brugðist verði við því.

Það sem ég var að benda á í ræðu minni er að þættir í sjónvarpi, eins og t.d. Landinn í Ríkisútvarpinu og Úti um allt land, held ég að það heiti, hjá 365 miðlum eru feiknarlega vinsælir og með því sjónvarpsefni sem er horft einna mest á. Ég held því að raunverulegur efnahagslegur hvati, áhorfslegur hvati, sé til að sinna því verkefni betur. Til lengri tíma litið held ég að það verði ekki gert nema með uppbyggingu miðstöðva hringinn í kringum landið eða neti fréttaritara og ég held að það hefði þurft að koma fram í nefndarálitinu að skýra þyrfti og styrkja þá starfsemi.