141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[15:41]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (F):

Virðulegur forseti. Í þessari umræðu um Ríkisútvarpið og stöðu þess og framtíðarsýn Alþingis fyrir Ríkisútvarpið er ekki úr vegi að rifja aðeins upp uppruna þessarar merku stofnunar sem hefur gegnt mikilvægu hlutverki í Íslandssögunni núna í yfir 80 ár.

Ríkisútvarpið var stofnað við erfiðar aðstæður. Það voru miklar efnahagsþrengingar á Íslandi árið 1930 og heimskreppan var skollin á þegar menn réðust í þetta stóra, mikla og metnaðarfulla verkefni að koma hér á ríkisútvarpi. Það var ríkisstjórn við völd sem að sumra mati er besta ríkisstjórn Íslandssögunnar, hvorki meira né minna, ríkisstjórn framsóknarmanna. Þá voru framsóknarmenn einir í stjórn og höfðu verið frá árinu 1927. Þessi ríkisstjórn réðst strax í mikið uppbyggingarstarf en lenti svo í því að takast á við afleiðingar heimskreppunnar sem skall á undir lok árs 1929. Menn létu það ekki slá sig út af laginu og réðust árið eftir í stofnun Ríkisútvarpsins til þess að fræða landsmenn, stuðla að menningarlegri fjölbreytni og því að fólk um allt land hefði aðgang að bæði fróðleik og ýmsu menningarlegu efni eins og tónlist. Markmið Ríkisútvarpsins var ekki hvað síst að ýta undir lýðræðislegar umræður og rökræðu um landsins gagn og nauðsynjar þar sem fólk með ólík sjónarmið gæti komið ábendingum sínum og rökstuðningi á framfæri. Það mætti þá verða til þess að þjóðinni miðaði nokkuð áfram og menn tækju betri ákvarðanir byggðar á staðreyndum, auðvitað helst, og rökræðu sem sem flestir hefðu haft tækifæri til að taka þátt í og helst allir til að fylgjast með.

Þetta fól auðvitað í sér algjöra byltingu vegna þess að fram að því höfðu menn þurft að reiða sig á dagblöðin sem bárust í mörgum tilvikum ekki fyrr en nokkrum dögum eftir að þau komu út og voru á þeim tíma fyrst og fremst flokksmálgögn. Hver og einn fékk þannig fyrst og fremst upplýsingar frá sínum flokki um gang mála. Með tilkomu Ríkisútvarpsins varð til vettvangur fyrir lýðræðislega umræðu og rökræðu og því er mjög mikilvægt að Ríkisútvarpið sinni því sögulega hlutverki sínu vel enn þann dag í dag.

Menn hafa svo sem ýmsar skoðanir á því hvernig það gengur en að minnsta kosti er mikilvægt að menn hafi það sem yfirlýst markmið að Ríkisútvarpið stuðli að rökræðu og gæti hlutleysis. Ég trúi því að menn þar á bæ vilji reka miðilinn af fagmennsku og mikilvægt er að löggjafinn geri mönnum það sem best kleift.

Hlutverk Ríkisútvarpsins er fjölþætt eins og kemur fram í frumvarpinu og menn hafa rætt nokkuð í dag. Ég vil aðeins bæta við þá umræðu sem hefur farið fram hér um mikilvægi þess að Ríkisútvarpið hafi kost á því að sinna landinu öllu. Þá kem ég aftur að þessu með uppruna stofnunarinnar. Það markmið sem Ríkisútvarpinu var sett strax í upphafi er enn í fullu gildi og auðvitað ekki gott að meira en 80 árum eftir að farið var af stað skuli enn vera staðir á landinu þar sem menn hafa í rauninni ekki aðgang að þjónustu Ríkisútvarpsins. Því hlýtur að vera forgangsatriði að bæta þar úr og uppfylla þetta meira en 80 ára gamla markmið um að allir hafi aðgang að þeim fróðleik, þeirri menningu og þeirri rökræðu sem á sér stað í Ríkisútvarpinu.

Svo er það hitt að í hverjum og einum landshluta á að vera fulltrúi Ríkisútvarpsins og helst auðvitað öflugar svæðisstöðvar til þess að sinna því sem er að gerast á hverjum og einum stað. Það er ekki nóg að allir geti heyrt og séð fréttaflutning og annað efni í Ríkisútvarpinu, það þarf að vera fulltrúi á hverju svæði sem fylgist með því sem er að gerast á þeim stað. Það er einfaldlega ekki hægt að ætlast til þess að fólk sem er staðsett í Reykjavík hafi yfirsýn yfir allt sem er að gerast um allt land. Því hlýtur að vera sameiginlegt markmið okkar að Ríkisútvarpinu sé gert kleift að halda úti svæðisstöðvum og vera með fulltrúa til þess að fylgjast með gangi mála. Það er ekki bara fyrir fólkið á hverjum og einum stað, öll hljótum við að hafa áhuga á því að frétta af gangi mála um allt land þannig að við séum örugglega eitt samfélag og að sú samræða sem var einn megintilgangurinn með stofnun Ríkisútvarpsins eigi sér stað.

Annað mikilvægt hlutverk RÚV er nefnt í frumvarpinu sem liður 1 á listanum yfir menningarlegt hlutverk, það er að leggja rækt við íslenska tungu. Þarna held ég að ýmis merki séu á lofti um að ástæða sé til að gera sérstakt átak, vegna þess að menn hafa á undanförnum árum orðið svolítið værukærir hvað varðar vernd tungumálsins og mikilvægi þess að viðhalda fjölbreytileika þess. Eins og reyndar nokkur fjöldi þingmanna hef ég reynslu af því að starfa á Ríkisútvarpinu. Þá var enn við lýði, og er vonandi að mestu leyti enn, að farið var yfir handrit til dæmis fréttamanna áður en fréttirnar voru lesnar til þess að gæta þess að málfar væri þar eins og best yrði á kosið. Það vill svo skemmtilega til að það var núverandi hæstv. menntamálaráðherra sem oft og tíðum las yfir handritin fyrir fréttamennina. Hún gerði reyndar fleiri athugasemdir en margir aðrar yfirlesarar, en það var mjög vel þegið vegna þess að fréttamenn og aðrir starfsmenn Ríkisútvarpsins vilja gjarnan að það sem frá þeim kemur sé sem vandaðast og það á ekki hvað síst við um málfarið. Því tel ég rétt að hnykkja á því að Ríkisútvarpið forgangsraði í þágu íslenskrar tungu þannig að það efni sem þar birtist sé vandað og á góðu íslensku máli, enda er útbreiðsla Ríkisútvarpsins slík að það sem þar birtist hefur óhjákvæmilega áhrif á landsmenn alla og möguleika þeirra á að nýta sér íslenskuna og temja sér gott íslenskt mál.

Til viðbótar við að gæta þess að til dæmis fréttaflutningur og annað efni í Ríkisútvarpinu sé á góðu íslensku máli tel ég að fullt tilefni sé til þess að auka sérstaka umfjöllun um tungumálið, til dæmis í fræðsluþáttum þar sem fólki er bent á algengar málvillur og hvernig megi leiðrétta þær, hvernig megi nýta tungumálið betur og temja sér notkun fjölbreytilegri orðaforða. Slíkir þættir hafa reyndar verið í útvarpi en nú er orðið tímabært að menn nýti nýja tækni, þó ekki væri nema sjónvarpstæknina, í þágu málverndarhlutverks Ríkisútvarpsins og það er alveg hægt að gera á skemmtilegan hátt þannig að það höfði til dæmis til ungs fólks. Það væri tvímælalaust mjög gagnlegt. Þetta segi ég af eigin reynslu vegna þess að þegar mönnum hefur verið bent á hvernig megi gera hlutina betur festist það mönnum í minni og þeir reyna að viðhalda því. Því er mikilvægt að sem flestir hafi aðgang að slíkum leiðbeiningum.

Ég næ ekki að fara yfir alla punktana varðandi hlutverk Ríkisútvarpsins en vil á þeim tíma sem ég á eftir nefna sérstaklega eitt sem er mér mjög hugleikið og tel mikilvægt að Ríkisútvarpið leggi áherslu á. Það er að passa upp á söguna, að vernda söguna í hljóðupptökum, myndum og líka í rituðu máli. Þar er einnig ástæða til þess að gera sérstakt átak vegna þess að það er svo margt í samtímasögunni sem getur orðið merkilegt þegar frá líður, hlutir sem kannski virðast of sjálfsagðir til þess að þykja sérstaklega fréttnæmir í samtímanum. Það er til dæmis mjög áhugavert að hlusta á gamlar upptökur, gömul viðtöl á Rás 1 sem voru kannski tekin á fyrri hluta 20. aldar um dagleg málefni þá en veita nú innsýn í það hvernig lífið var á þessum tíma og jafnvel innsýn í tungutak og mállýskur sem hafa að miklu leyti horfið. Allt þetta er mikilvægt að vernda, en einnig auðvitað sögulegar staðreyndir.

Ég áttaði mig allt í einu á því — tíminn líður nú svo hratt — að þeir sem upplifðu fyrri heimsstyrjöldina voru allt í einu allir fallnir frá meira og minna, nánast allir. Ég held að allir breskir hermenn sem börðust í fyrra stríði séu til dæmis fallnir frá. Staðan er allt í einu orðin sú að fólk sem var 25 ára þegar Bretar hernámu Ísland, þá var ekki langt liðið af seinni heimsstyrjöldinni, var fætt árið 1915 og er því að verða 100 ára gamalt, það sem er enn lifandi. Ég þurfti að reikna þetta nokkrum sinnum, virðulegur forseti, því mér brá hreinlega í brún. Þetta fólk upplifði mjög merkilega viðburði í Íslandssögunni og því er afskaplega mikilvægt að það fólk fái tækifæri til þess að segja sögu sína, ekki endilega bara varðandi stóru atburðina, þegar herskipin komu eða slíkt, heldur líka um daglegt líf á þessum tíma og öðrum tímabilum.

Nú er ég að átta mig á því, virðulegur forseti, þó að ég sé ekki mjög gamall — þó að ég sé nú eldri í dag en í gær — að það er eiginlega ekkert gamalt fólk orðið eftir á Íslandi, frá mínum bæjardyrum séð. Það er eingöngu fólk á miðjum aldri sem hefur elst, fólk sem maður man eftir sem miðaldra er núna skilgreint sem eldri borgarar, en meira og minna allt það fólk sem maður man eftir sem eldri borgurum frá því að maður var barn og á yngri árum er fallið frá og með því auðvitað gríðarlega mikil menningarleg og söguleg þekking. Því er full ástæða til að gera átak í að skrá söguna, ræða við fólk, taka upp bæði í hljóð og mynd. Til dæmis má nýta sér vinnu sem breska ríkisútvarpið, BBC, fór í þegar það áttaði sig á þessu sem er að renna upp fyrir mér, og hefur reyndar verið að gera það undanfarin ár. Breska ríkisútvarpið fór í sérstakt átak til þess að safna sögum úr seinni heimsstyrjöldinni.

Nú nefni ég seinni heimsstyrjöldina bara sem dæmi en auðvitað eru önnur tímabil Íslandssögunnar mikilvæg líka. Breska ríkisútvarpið auglýsti eftir dagbókum, eftir því að fólk sendi inn á tölvupósti eða með öðru formi áhugaverðar sögur frá þessu tímabili eða gæfi sig fram og færi í viðtöl. Því var auðvitað svarað og bæði fólkið sjálft og ættingjar höfðu samband til þess að skrá sögu almennings. Það hafði vantað dálítið upp á að menn skráðu upplifun almennings í Bretlandi á þessum tíma, þó að auðvitað væri mjög vel skráð hvað hefði gerst í ríkisstjórninni og hvað Churchill hefði sagt á hverjum tíma og svo framvegis.

Þetta þurfum við að gera á Íslandi líka og það er tilvalið verkefni fyrir Ríkisútvarpið að gera sérstakt átak í því að skrá sögu landsins, sögu hins daglega lífs í gegnum tíðina. Ekki er seinna vænna að hefja þá vinnu á mjög skipulagðan og markvissan hátt vegna þess að þeim fækkar dag frá degi sem eru til frásagnar um Íslandssöguna.