141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[16:08]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þeir sem hafa hlustað á mál okkar og á hv. þingmann og hafa tekið eftir því að hann skírskotaði mjög mikið til sögunnar og mikilvægis þess að Ríkisútvarpið legði rækt við hina sögulegu geymd verða auðvitað að átta sig á því að þannig tala menn oft á tímamótum sínum. Þess vegna skal það upplýst að hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er 38 ára í dag og þess vegna er ekkert óeðlilegt að hann horfi til baka.

Ég fór líka að velta fyrir mér að ef hv. þingmaður rifjaði upp fyrstu ár sín væru þau væntanlega í kringum árið 1980 sem er fyrir okkur hin nánast dagurinn í gær.

Virðulegi forseti. Stóra áskorunin sem Ríkisútvarpið stendur frammi fyrir er einmitt að standa undir þeim fjölbreytilegu kröfum sem eru gerðar til þess. Þær kröfur lúta ekki einungis að landsbyggðinni eða höfuðborgarsvæðinu, þær lúta líka að ýmsum öðrum þáttum. Við sjáum til dæmis að í síbyljunni í dag er lítil rækt lögð við klassíska tónlist. Ríkisútvarpið sinnir því og ég tel að það eigi einmitt að vera (Forseti hringir.) eitt hlutverk Ríkisútvarpsins að fara inn á þær slóðir sem við getum ekki búist við að markaðurinn leysi með öðrum hætti, ella væri engin réttlæting til fyrir Ríkisútvarpinu.