141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[17:30]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef alveg skilning á þessu sjónarmiði og þetta er út af fyrir sig hlutur sem við þurfum að taka afstöðu til. Annars vegar yrði það þá þannig að Ríkisútvarpið mundi búa til einhverja þætti með öllum þessum framboðum. Það vakna auðvitað ýmsar spurningar hvernig á að fara með framboð sem ekki bjóða fram í öllum kjördæmum. Upplýsingar eru um það að einhver tiltekin framboð velti fyrir sér að bjóða fram í fáeinum kjördæmum, kannski bara einu kjördæmi o.s.frv. Væntanlega yrði að búa til einhverjar sérreglur fyrir það. Síðan er það hitt að það verða önnur framboð sem bjóða fram á landsvísu.

Ég held að Ríkisútvarpið muni lenda í dálitlum vanda með þetta mál, ekki kannski hvað það áhærir sem hv. þingmaður leggur hérna til, það verður reynt að finna einhverja leið á því, heldur miklu frekar hitt að Ríkisútvarpið verður þá að vera með einhverja þætti sem dekka 20 framboð ef þannig ber undir. Við hv. þingmaður sjáum auðvitað og gerum okkur grein fyrir því að það yrði fremur leiðinlegt á kvöldi fyrir kjördag þegar hinar hefðbundnu sjónvarpsumræður foringja stjórnmálaflokkanna hæfust með 20 þátttakendum. Ég geri ráð fyrir að það væri ekki mjög áhugavert sjónvarpsefni.

Ríkissjónvarpið mun því lenda í dálitlum vanda, alveg eins og það lenti í miklum vanda þegar stjórnlagaráðskosningarnar voru. 500 manns buðu sig fram og allir töldu sig eiga rétt, sem var auðvitað heilmikið til í, að mega tjá hug sinn þar. Það blasti við að sjónvarpsstjörnur úr Silfri Egils og slíkum þáttum höfðu mikið forskot á þá einstaklinga sem gátu ekki kynnt sig nema kl. 3 að nóttu með 5 mínútna innslagi hjá Ríkisútvarpinu sem brást við hinu samfélagslega hlutverki sínu að sögn með því að útvarpa þessu í belg og biðu á tímum sem eingöngu nátthrafnar gátu hlustað á. Þetta verður dálítið snúið en út af fyrir sig held ég að það sé einnar messu virði að við veltum þessu aðeins fyrir okkur. Þetta er auðvitað spurning um til dæmis rétt hinna minni framboða og svo er síðan hin áleitna spurning sem kemur upp að sum framboð eru betur fjárhagslega í stakk búin til að vinna svona efni en önnur.