141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[18:00]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er nú ekki líkt hv. þingmanni að vera svona önuglyndur. Það er ekki líkt hv. þingmanni að snúa út úr orðum manns. En ég sagði ekkert í þá veru sem hv. þingmaður nefndi hérna áðan. Ég vakti bara athygli á því að á meðan hér var ein sjónvarpsrás vöktu þeir sjónvarpsþættir sem gerðir voru auðvitað mikla athygli og eins tilteknir menn sem í þeim voru.

Ég ætla að segja eitt svo það fari ekkert á milli mála; Kristján Eldjárn var afar hæfur maður, eins og ég sagði áðan. Ég sagði það í ræðu minni. Ég vakti hins vegar athygli á því að fábreytnin á sínum tíma hefði verið svo mikil að áhorf manna á einstaka þætti hefði gert menn frægari en ekki að það hafi einhver áhrif á niðurstöðuna. Þarna blöstu betur við mannkostir. Mér finnst ómerkilegt af hv. þingmanni að reyna að bera mig sökum til að ég þurfi síðan að svara fyrir þá bölvuðu vitleysu sem hv. þingmaður heldur hérna fram.

Og varðandi það að þingið ætti að hafa einhver áhrif á dagskrárgerðina var ég einfaldlega að segja það sem hlýtur að blasa við að þegar Ríkisútvarpið á í hlut þá hljótum við að gera ákveðnar kröfur um fjölbreytni, um sanngirni og þess háttar. Í því felst engin íhlutun um dagskrárgerð. Ég hef margoft sagt í andsvari í dag að það væri ekki okkar að hafa íhlutunarvald um dagskrárgerð Ríkisútvarpsins. Hv. þingmaður á ekkert með að snúa svona út úr þessu og reyna að gera mig tortryggilegan í málum sem ég var ekki að tala um í þá veru sem hv. þingmaður telur. Það er illa gert að mínu mati þegar hv. þingmaður reynir að draga upp einhverja ómerkilega og ósanna mynd af því sem ég var að segja. Ég var einfaldlega að segja það að Ríkisútvarpið hefði þetta víðtæka hlutverk og að það þyrfti að skerpa á þeirri sýn sem Ríkisútvarpið hefur til að tryggja bæði fjölbreytni í þjóðmálaumræðunni og ákveðna menningarlega fjölbreytni. Er hv. þingmaður ósammála því?