Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ég veit að fólk skilur að það er erfitt fyrir mann að þurfa að tala við hv. þm. Björn Val Gíslason þegar hann fer niður á það lágkúrulega plan sem hann gerði áðan. Ég var ekki að vega að einum eða neinum, síst af öllum hinum mæta forseta Íslands og ég vil ekki að hv. þingmaður haldi fram slíku rugli. Ég vildi einfaldlega vekja athygli á því að það voru aðrir tímar í sjónvarpi og út af því þurfti ekkert að leggja umfram þetta.
Það sem ég sagði áðan hafði nákvæmlega ekkert að gera með kjörið á Alþingi 2009. Ég vakti athygli á því að sú undarlega staða hefði verið uppi að þegar kosið var til stjórnlagaráðs hefði Ríkisútvarpið verið sett í mikinn vanda þegar það útvarpaði einum 500 ræðum þeirra sem buðu sig fram. Það var það sem ég sagði. Ég hef heldur enga skoðun á því hvaða starfsmenn eigi að ráða eða hverja eigi að reka. Ég sagði að þingmenn Suðurkjördæmis hefðu skoðun á þessum tiltekna manni og ég vakti líka athygli á því að vegna þess að við værum með frjálst útvarp og fleiri fyrirtæki á þessum markaði hefði þessi tiltekna uppsögn verið gerð að umtalsefni nokkrum sinnum í dag. Hún hefði ekki haft önnur áhrif en þau að þessi starfsmaður gat fengið vinnu hjá frjálsum útvarpsstöðvum, (Forseti hringir.) en svona ríkisvæðingarmanni eins og hv. þm. Birni Val Gíslasyni mundi ekki líka það.