141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[18:07]
Horfa

Einar K. Guðfinnsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef áður sagt að ég hef ekki alveg gert upp hug minn til þessa máls, ég hef ekki kynnt mér tillöguna alveg vel til hlítar. Það er ekki alveg einfalt mál með hvaða hætti kynna á þessi framboð. Maður getur hugsað að það geti annars vegar verið gert þannig að framboðin fái einhvern möguleika til að hafa sitt eigið sjónvarpsefni. Það getur líka falist í því einhvers konar ójafnræði vegna þess að flokkarnir eða framboðin kunna að vera misvel stödd fjárhagslega. Þau hafa mismunandi mikla þekkingu á því að útbúa sjónvarpsefni o.s.frv.

Hin leiðin gæti verið sú, sem ég geri ráð fyrir að ríkisstjórnarflokkarnir muni fara, að eiga viðtöl við fulltrúa framboðanna og gefa þeim kost á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Ég held ekki að það sé til ein lausn í þessu. Við sáum, eins og ég nefndi í framhjáhlaupi áðan, að það getur komið upp dálítið sérkennileg staða. Það eru 20 framboð, eða þar um bil, sem lýst hafa yfir vilja sínum til að bjóða fram, ýmist á landsvísu eða þá í einstökum kjördæmum eða fáeinum kjördæmum o.s.frv. Það getur verið dálítið snúið að koma við einhverri kynningu sem gætir tiltekins jafnræðis í þessum efnum.

Ég er hins vegar alveg sammála hv. þingmanni í því að það er áskorun sem Ríkisútvarpið þarf að takast á við og við þingmenn þurfum þá væntanlega að hafa skoðun á með hvaða hætti við viljum stjórna þessum hluta dagskrárgerðar Ríkisútvarpsins þó að við viljum ekki vera með puttana í því að öðru leyti. Ég ætla þá að áskilja mér rétt til að gefa mér aðeins betri tíma til að hugsa um hver hin endanlega afstaða mín er til málsins.