Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ég get alveg tekið undir þetta. Það hefur reyndar ekki bara að gera með fjölmiðlun heldur snýr líka að atvinnulífi þjóðarinnar. Grundvallaratriði er að það séu tryggar nettengingar, ljósleiðari er sennilega það öruggasta og besta sem við þekkjum í dag, það er forsenda þess að hægt sé að byggja upp atvinnulíf og líka aðgengi að afþreyingu og menningarefni ýmiss konar. Ég held að það sé kjarni málsins og mikilvægt að tryggja það aðgengi.
Hvað varðar enn og aftur rekstur þessarar stofnunar að sama hversu góðan vilja menn hafa þá munu hlutirnir breytast svo hratt og ég held að það sé ekki bara yngsta kynslóðin heldur mun þetta grípa sig mjög hratt og eftir öllum aldri. Nú þegar er töluvert aðgengi að efni sem menn geta valið heiman úr stofu og það mun bara aukast jafnt og þétt. Ég held að við þetta geti Ríkisútvarpið aldrei keppt og varla dettur nokkrum manni í hug að það verði gert. Þess vegna, enn og aftur, skiptir svo miklu máli að skilgreina betur hvað og hvers vegna og gera það síðan mjög vel. Ég er sannfærður um að mikil eftirspurn er eftir menningar- og listatengdu efni og líka efni um sögu þjóðarinnar og lífið hér í landinu. Menn sjá hvaða þættir vekja athygli og verða vinsælir, það eru meðal annars þættir um lífið í landinu, líf þjóðarinnar og líka sögu hennar. Fólk hefur áhuga á þessu og það er það sem ríkissjónvarpið á að gera. Ég verð að segja að mér finnst oft alveg furðulegt að hugsa að þegar verið er að stilla upp sjónvarpsmyndum eða sjónvarpsþáttum þá sé verið að sýna hina og þessa ameríska sjónvarpsþætti í raun og veru í boði ríkisstjórnarinnar.