Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ég get svo sem tekið undir það á margan hátt. Ég hef hins vegar verið á þeirri skoðun og við framsóknarmenn að mikilvægt sé enn um stundir að Ríkisútvarpið sé til í núverandi mynd og sé raunverulegur valkostur fyrir þann hluta þjóðarinnar sem ekki nýtur annarrar tækni, þangað til þessi tækni er komin til allra, sem getur gerst á einhverjum 4–5 árum. Það er kannski munurinn á sjónarmiðum okkar framsóknarmanna og sjálfstæðismanna hvað varðar sýnina á hvað Ríkisútvarpið á að standa fyrir.
Það hefur verið aðeins misvísandi í orðum sjálfstæðismanna í umræðunni í dag, og reyndar eins í 2. umr., og ég vildi því í seinna andsvari mínu spyrja hv. þingmann sem er þingflokksformaður sjálfstæðismanna hvort hann gæti skýrt afstöðu Sjálfstæðisflokksins meðal annars til þess hvort RÚV eigi að vera á auglýsingamarkaði og hvort Ríkisútvarpið eigi að vera til í þeirri mynd sem við vorum að ræða, þó það sé auðvitað lengra mál að fara yfir hvort að takmarka eigi valdsvið eða verksvið Ríkisútvarpsins. Mjög háleit markmið eru sett fram í frumvarpinu og ekki víst að hægt sé að uppfylla þau öll, en varðandi þessa tvo þætti væri áhugavert að heyra skoðun þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins.