Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Virðulegi forseti. Ég hef ekki heyrt rök sem mæla með því að Ríkisútvarpið hætti með Rás 2. Komi þau rök fram skal ég að sjálfsögðu hlusta á þau.
Varðandi 3. lið á bls. 2 um fjölmiðlaefni þá er alveg rétt að það er mjög fjölbreytilegt sem þar er talið upp og mjög víð skilgreining á því hvað Ríkisútvarpið á að gera. En það er einmitt spurningin hvort það eigi ekki að vera þannig, hvort Ríkisútvarpið eigi ekki að hafa mjög fjölbreytt hlutverk. Um það geta menn að sjálfsögðu haft ýmsar skoðanir. Eins og ég horfi á stofnunina í dag þá samræmist hún þeim sjónarmiðum en það er svo sem allt í lagi að velta því upp hvort í einhverjum tilvikum, og það er svo sem í þessu frumvarpi, eigi stofnunin Ríkisútvarpið ekki að vera jafnáberandi og aðrir. Ég lít svo á að til dæmis takmarkanir á kostun séu til þess fallnar að koma til móts við þær vangaveltur og hugmyndir.
Ég verð hins vegar að viðurkenna að það er 4. gr. sem ég hef aðeins velt vöngum yfir. Ég er ekki endilega að segja að hún sé eitthvað hættuleg eða slíkt en hér stendur, með leyfi forseta:
„Ríkisútvarpið skal stofna og reka dótturfélög, sem að fullu leyti eru í eigu þess, fyrir aðra starfsemi en þá sem kveðið er á um í 3. gr.“
Reyndar eru talin upp nokkur atriði, en ég veit ekki af hverju ríkisstofnun ætti að fara í einhvern dótturfélagabransa með eitthvað hjá sér. Er ekki hægt að láta þetta rúmast innan einhvers skilgreinds hlutverks og þá víkka það út? Ég staldra aðeins við þessa grein.