141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.

194. mál
[19:40]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég er sammála hv. þingmanni og þakka honum fyrir svarið um að maður ætti kannski að hafa meiri áhyggjur af 4. gr., vegna þess að ef einhverjar takmarkanir væru í 3. gr. þá er þeim öllum hrundið í 4. gr. Þá stofnar Ríkisútvarpið dótturfélag og gerir það sem má ekki gera samkvæmt 3. gr. í 4. gr. Eftir sem áður verður RÚV og getur verið allt um lykjandi á þessu sviði í samkeppni við einkarekna fjölmiðla. Vissulega er reynt að koma lítillega inn í það en ég efast um að þær breytingar sem er gert ráð fyrir varðandi auglýsingar muni valda miklum straumhvörfum.

Þá langar mig að vinda mér í síðari spurningu mína er varðar þá breytingartillögu er samflokksmaður hv. þingmanns hefur lagt fram við þetta frumvarp. Ég tók ekki eftir að hann hefði minnst á þá tillögu í ræðu sinni en hann gerði það eflaust í fyrri ræðu sinni sem ég því miður missti af. Er hv. þingmaður sammála þessari breytingartillögu þar sem fram kemur að Ríkisútvarpið eigi að veita öllum gildum framboðum til Alþingis jafnan útsendingartíma til að kynna stefnumál sín án endurgjalds? Hvað er átt við? Er átt við að öll gild framboð til Alþingis fái, hvað eigum við að segja, 15 mínútna sjónvarpsþátt og ekkert meira? Er átt við eitthvað allt annað? Er átt við að takmarka eigi umfjöllunina eingöngu við þetta sameiginlega fyrir fram ákveðna ríkisritstýrða framlag til kosningabaráttunnar eða hvað eru menn eiginlega að fara hér?