Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu.
Hæstv. forseti. Til að gera langa sögu stutta má segja að í 3. gr. eru talin upp ótalmörg atriði sem talin eru falla undir fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Mitt mat er að það sé eiginlega engin tegund fjölmiðlastarfsemi sem falli þarna utan, það sé hægt að heimfæra alla eða nánast alla fjölmiðlun með einhverjum hætti undir eitthvert þeirra ákvæða sem þar er að finna. Um er að ræða í 1. mgr. sjö töluliði, í 2. mgr. aðra sjö töluliði, í 3. mgr. sex töluliði og í 4. mgr. sjö til viðbótar. Þarna erum við að tala um líklega eina 27 liði, mismunandi þætti sem Ríkisútvarpið á að hafa með höndum, misskýrt, misvel útfært, en heildarmat mitt á 3. gr. frumvarpsins er það að fátt sé í fjölmiðlaheiminum sem ekki geti fallið undir hugtakið fjölmiðlaþjónusta í almannaþágu eins og það er skilgreint þar. Eitt af markmiðum frumvarpsins var að skýra nánar hvað fælist í fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Því veldur það mér vonbrigðum að það sé bara gert með því að fjölga punktunum og fjölga skilgreiningaratriðunum en ekki með því að afmarka nánar hvað það er sem er fjölmiðlaþjónusta í almannaþágu og hvað það er sem er einhver önnur fjölmiðlaþjónusta, til dæmis hugsanlega fjölmiðlaþjónusta í afþreyingarskyni, sem er þá að mínu mati eitthvað sem ætti að láta markaðnum frekar eftir.
Í 4. gr. er talað um aðra starfsemi, þ.e. starfsemi sem ekki fellur undir fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Þar kemur fram að Ríkisútvarpið geti stofnað til dótturfélaga um nánast hvað sem er annað en fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. Ég hef líka áhyggjur af því. Í 16. gr. eru hins vegar settar ákveðnar skorður við nýrri fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu. En þegar þær greinar eru lesnar saman þá finnst mér frumvarpshöfundum hafa mistekist það ætlunarverk sitt að afmarka með skýrari hætti hvað Ríkisútvarpið ætti að gera og hvað það ætti ekki að gera.