ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. síðasta ræðumanni og vangaveltur hans um möguleg áhrif þessa á þá aðila sem núna eru að skoða að koma hingað mögulega í fjárfestingar. Það liggur fyrir að heildarendurskoðun á þessari löggjöf á að fara fram á þessu ári þar sem ívilnanasamningarnir eða ívilnanalöggjöfin gildir ekki lengur en til næstu áramóta. Út af fyrir sig er sú löggjöf jákvæð og við í minni hlutanum hér á þingi studdum á sínum tíma ívilnanafrumvarpið þegar það kom fram og fór í gegnum þingið, en vöruðum við því á sama tíma að þetta gæti ekki verið tæmandi listi sem þar var talinn upp. Gagnvart stærri verkefnum yrði alltaf að vera ákveðinn sveigjanleiki og við yrðum að vera opin fyrir því að þurfa að gera áfram ákveðna sérsamninga. Það hefur auðvitað gengið eftir. Það er svo margt sem getur spilað inn í þegar verið er að gera mögulega fjárfestingarsamninga við aðila sem ætla að fjárfesta hér í atvinnulífi, setja upp framleiðslufyrirtæki, til að mynda aðstæður á markaði á hverjum tíma sem kristallast í samkeppnisstöðu okkar gagnvart þeim löndum sem við keppum við. Þrátt fyrir að Ísland hafi margt fram að bjóða í þessum efnum er það nú svo að það er pyngjan sem að lokum telur hjá fyrirtækjum og skiptir máli í samkeppninni.
Á þessu kjörtímabili hafa gerst mjög stór slys þegar við höfum misst héðan fjárfesta út af klaufaskap og stefnu þeirra stjórnvalda sem nú eru við völd. Ég mundi segja að skýrasta dæmið um það væri þegar menn fögnuðu hér þegar Alcoa ákvað að hætta við öll áform á Bakka og fór með þá verksmiðju og byggði hana annars staðar í heiminum. Í dag erum við með frumvörp á borðinu frá hæstv. atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra þar sem hann leggur til ívilnanir vegna orkufrekra framkvæmda á Bakka. Það er fyrirtæki sem er miklu minna í sniðum en Alcoa hefði verið með og miklu minni fjárfesting, fjárfesting upp á 27,8 milljarða á móti um 198 milljörðum sem bein erlend fjárfesting Alcoa hefði verið og hefði getað verið komin á fullt skrið ef menn hefðu haldið skynsamlega á málum. Útflutningsverðmæti afurða frá álverksmiðjunni hefðu verið um tæpir 80 milljarðar á ári, á móti um 10 milljörðum eða eitthvað slíkt af þessari verksmiðju. Ég hef ekki fengið þá tölu nákvæmlega.
Sú verksmiðja sem nú á að setja upp mengar líka fimm sinnum meira á hvert framleitt tonn en álverksmiðjur gera. Það er í raun sorglegt hvernig þeir sem kenna sig við umhverfisvernd hafa barist gegn uppbyggingu álvera sem er kannski, þegar öllu er á botninn hvolft, einhver sú umhverfisvænasta framleiðsla sem við getum farið í þegar heildaráhrifin eru skoðuð. Ál er nefnilega ótrúlega umhverfisvænn málmur. Það hefur verið framleitt í um 120, 130 ár í heiminum og 80% af því áli sem framleitt er í heiminum hefur verið endurunnið á þessum tíma. 6% af orkunni sem fer í að framleiða ál eru notuð til að endurvinna það. Skýrasta dæmið sem maður getur tekið um þetta, virðulegi forseti, er nokkuð sem við þekkjum öll úr daglega lífinu; áldósir utan um gosdrykki og slíkt. Eftir að slík dós kemur til endurvinnslustöðvar almennt í Evrópu líða tveir mánuðir þar til hún er komin aftur í hillur stórmarkaðanna full af gosdrykk. Þetta er því út af fyrir sig sorglegt.
Það sem er kannski mikilvægast í stöðunni núna er að menn gera sér grein fyrir því, þrátt fyrir svona ívilnanalöggjöf eins og við erum að tala hér um og ég er í sjálfu sér jákvæður gagnvart, og þessi ríkisstjórn er í raun búin að viðurkenna þrátt fyrir þau orð sem voru viðhöfð 2010 þegar ívilnanalöggjöfin var fyrst sett á, að við þurfum að hafa sveigjanleika gagnvart svona verkefnum í framtíðinni. Viðurkenning á því af hálfu stjórnarflokkanna liggur auðvitað í þeim frumvörpum sem hæstv. ráðherra Steingrímur J. Sigfússon hefur lagt hér fram.
Mig langar, með leyfi forseta, að rifja aðeins upp ummæli þáverandi hæstv. iðnaðarráðherra, Katrínar Júlíusdóttur, frá 27. apríl 2010 þegar við vorum að ræða ívilnanalöggjöf á þeim tíma. Þá sagði hún, með leyfi forseta:
„Með frumvarpinu er verið að leggja til að horfið verði frá því fyrirkomulagi sem hefur tíðkast hér á landi að gera sértæka fjárfestingarsamninga vegna einstakra verkefna á grundvelli sérstakra heimildarlaga frá Alþingi, eins og við þekkjum orðið nokkuð vel, og síðan samþykkis Eftirlitsstofnunar EFTA eftir því sem þörf hefur verið metin á í hvert skipti. Hefur það fyrirkomulag reynst þungt í vöfum og ómarkvisst og með því formi er ekki boðið upp á nægilegan sveigjanleika til að mæta ólíkum fjárfestingarverkefnum.
Virðulegi forseti. Í þessum efnum þurfum við auðvitað að horfa til jafnræðis.“
Svo mörg voru þau orð, virðulegi forseti. Hún segir hér áfram, með leyfi forseta:
„Bara svo ég nefni það aftur að þegar við skoðum stöðu fjárfestinga hér á landi í gegnum tíðina, fyrir utan bankana sem standa ekki lengur, þá hafa erlendar fjárfestingar verið meira og minna í einni grein, stóriðjunni. Þessu viljum við breyta og reyna að fá hingað til lands fjölbreyttari nýfjárfestingar.“
Svo sjáum við árangurinn, virðulegi forseti, á þeim rétt tæpu þremur árum sem liðin eru frá því hæstv. þáverandi iðnaðarráðherra flutti þessa ræðu.
Formaður hv. iðnaðarnefndar á þeim tíma, hv. þm. Skúli Helgason, sagði í sömu umræðu, með leyfi forseta:
„Með frumvarpinu er vikið frá þeirri stefnu sem hefur verið í gildi í samfélagi okkar að gerðir eru stopulir sértækir fjárfestingarsamningar við einstök fyrirtæki á grundvelli heimildarlaga frá Alþingi, sem síðan krefjast samþykkis Eftirlitsstofnunar EFTA. Við tekur rammalöggjöf, almennar leikreglur sem ég tel að séu mjög til bóta og munu taka við af því þunglamalega sértæka kerfi sem m.a. hefur leitt til þess að einstök verkefni taka mánuði og jafnvel missiri í meðförum stjórnvalda. Þess í stað munum við í framtíðinni búa við almennar gegnsæjar leikreglur sem eru öllum ljósar og standa öllum til boða sem uppfylla tiltekin almenn skilyrði fyrir veitingu ívilnunar.“
Á sínum tíma var varað við þessum einlitu ummælum og væntingum. Við bentum á að við þyrftum að hafa áfram þann sveigjanleika sem felst í því að gera sérstaka ívilnanasamninga. Það liggur fyrir núna, virðulegi forseti, að með þeirri löggjöf sem við erum að samþykkja viðbætur á og þurfum að fara í endurskoðun á á þessu ári — sú endurskoðun þarf að fara af stað sem allra fyrst þannig að það verði klárt um áramót — setjum við almennar leikreglur. Við þurfum áfram að hafa upp á að bjóða sveigjanleika gagnvart stórum beinum erlendum fjárfestingum sem og mögulega innlendum fjárfestingum til að Ísland verði samkeppnisfært á öllum sviðum þegar kemur að því að laða til landsins beina erlenda fjárfestingu eða aðra innlenda nýfjárfestingu.