141. löggjafarþing — 99. fundur,  12. mars 2013.

ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi.

502. mál
[22:02]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að það sé ákveðin rangtúlkun þegar því er haldið fram að Alcoa hafi hætt við áform sín á Bakka vegna þess að orkusamningar við Landsvirkjun hafi ekki tekist. Sú umræða náði aldrei því stigi að á það reyndi. Auðvitað hefði verið hægt að byggja þá verksmiðju upp í ákveðnum áföngum og í tengslum við framtíðarorkuöflun. Hafi Landsvirkjun ekki getað gefið skýr svör um það liggur ástæða þess fyrst og fremst í þeirri afstöðu stjórnvalda að taka ekki næstu skref í virkjunarframkvæmdum. (Gripið fram í.) Þar liggur ástæðan. Það hefur verið stefna þessara stjórnvalda, sem endurspeglast í rammaáætlun, að reyna að draga úr virkjunarframkvæmdum eins og frekast er kostur. Ég held að þar liggi hundurinn grafinn. Þegar til stóð að endurnýja samninga við Alcoa á sínum tíma, þessa viljayfirlýsingu, neitaði ríkisstjórnin að gera það og sagðist ætla að leita víðtækari leiða, hún hafði það að markmiði. Við þær aðstæður hvarf Alcoa frá áformum sínum og sá að lengra kæmust þeir ekki með íslensk stjórnvöld, þau legðu ekki málinu lið.

Ég held að þetta sé mjög alvarlegt, virðulegi forseti, ef við horfum bara á hvað þessir vinstri flokkar, Samfylkingin og Vinstri grænir, hafa kostað okkur á þessu kjörtímabili og lengur ef út í það er farið. Við skulum fara aftur til þess tíma þegar samfylkingarmenn í Hafnarfirði komu í veg fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Við skulum fara yfir það hvað hefði gerst ef þessi 198 milljarða fjárfesting hefði átt sér stað á Bakka og ríkið þyrfti ekki að vera að leggja út neinar greiðslur núna til uppbyggingar innviða á því svæði af því að framkvæmdirnar hefðu einfaldlega greitt það. (Gripið fram í.) Þetta er búið að kosta samfélagið hundruð milljarða í fjárfestingum í landinu (Forseti hringir.) sem væri nú aldeilis gott að hafa núna til að tryggja og byggja undir velferðarkerfið (Forseti hringir.) í þeim vandræðum sem þjóðin er í um þessar mundir.