141. löggjafarþing — 101. fundur,  13. mars 2013.

vörugjald og tollalög.

619. mál
[14:07]
Horfa

Pétur H. Blöndal (S) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það frumvarp sem við ræðum er leiðrétting á þriggja mánaða gömlum lögum sem Alþingi samþykkti og síðan gerði nefndin aftur leiðréttingu á þeirri leiðréttingu. Maður getur varla verið á móti því að leiðrétta lög. Hins vegar er ég á móti því að lagður sé skattur á sætuefni og sykur og þannig stýrt hegðun og neyslu fullorðins fólks sem er sumt hvert eldra en ég, hvað þá annarra þingmanna. Ég er á móti því að við höfum vit fyrir fólki. Ég sit því hjá.