náttúruvernd.
Frú forseti. Nú ætla ég mér ekki þá dul að þykjast hafa meira vit á ræktuðu landi en hv. þingmaður. Einmitt þess vegna ákvað þingnefndin hreinlega eftir samráð innan nefndarinnar og samtöl við forsvarsmenn bænda að taka inn í frumvarpið þá skilgreiningu sem þarna er á ræktuðu landi.
Hvað snýr að ræktuðu landi tel ég að greinin dugi eins og hún er núna. Það sem hv. þingmaður ræddi hins vegar um land til nytja kemur fram í að mig minnir 19. gr. frumvarpsins, að um það gildi þau sömu lögmál að umferð um land sem er notað til ræktar eða nytja eða sérstakra nytja er takmörkuð í samráði við landeigendur eins og kemur fram í greininni.