náttúruvernd.
Frú forseti. Ég vil kannski fyrst segja það í upphafi, í framhaldi af orðum hv. þm. Birgis Ármannssonar sem talaði á undan mér, að það er svolítið áhyggjuefni á þessum vettvangi hvernig bestu málin verða oft að alvarlegu ágreiningsefni og hversu erfiðlega það virðist ganga að ná mikilvægum málum fram í málefnalegri umræðu og skilvirkri vinnu í þinginu. Í máli eins og þessu held ég að vilji sé í rauninni það sem þarf. Það er endalaust hægt að þyrla upp vafaatriðum, álitaefnum, vísa í vinnubrögð og biðja um fleiri umsagnaraðila. Það er hægt að gera það í þessu máli sem og svo mörgum öðrum og hefur verið gert í mörgum málum sem við höfum tekið til umfjöllunar í þinginu. Á einhverjum tímapunkti þarf samt að ljúka málum. Þetta mál á sér langan aðdraganda, það hefur gengið í gegnum mikla mótun, það hefur verið fullur og ríkur vilji til þess hjá stjórnarmeirihlutanum í umhverfis- og samgöngunefnd að taka tillit til sjónarmiða, vinna málið vel og leyfa öllum sem vilja leggja því gott til að njóta sannmælis og leggja því gott til í raun. Þetta vildi ég sagt hafa í upphafi míns máls.
Ég tel hins vegar að málið sé núna komið á það stig að það sé tilbúið til afgreiðslu. Það liggur þó í hlutarins eðli að í stórri heildarlöggjöf verða alltaf uppi álitamál inn í framtíðina og reynslan mun leiða það í ljós. Hún gerir það alltaf, það eru alltaf einhver atriði sem betur mega fara og ástæða er til að lagfæra í fyllingu tímans.
Þetta frumvarp til laga um náttúruvernd, ný heildarlöggjöf um náttúruvernd, hefur það að markmiði að vernda til framtíðar fjölbreytni íslenskrar náttúru, þar á meðal líffræðilega og jarðfræðilega fjölbreytni og fjölbreytni landslags, eins og kemur fram í markmiðsgrein frumvarpsins. Lögin eiga að tryggja eftir föngum þróun íslenskrar náttúru eftir eigin lögmálum. Þau eiga að stuðla að endurheimt raskaðra vistkerfa, svo ég drepi á helstu markmiðum, og þau miða að vernd og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Þau eiga að stuðla að því að ekki spillist líf eða land, loft eða lögur. Þeim er ætlað að auðvelda umgengni almennings að náttúru landsins og efla þekkingu og fræðslu almennings um náttúruna og tryggja rétt almennings til að fara um landið og njóta þessarar náttúru í sátt við hana sjálfa.
Umræða um náttúruvernd og umhverfismál hefur verið býsna fyrirferðarmikil undanfarin ár og tilefnin sem við höfum fengið til þeirrar umræðu á síðustu missirum hafa ýmist verið jákvæð eða neikvæð. Umræðan um rammaáætlun um vernd og nýtingu landsvæða og afgreiðsla þess máls hefur knúið okkur til þess að ígrunda vel grunnforsendur auðlindanýtingar, umgengni okkar við náttúruna og stöðu hennar. Af sama toga er umræðan um auðlindaákvæði stjórnarskrárinnar og ekki síður náttúruverndarákvæðið sem tillaga er um inn í nýja stjórnarskrá. Neikvæðu tilefnin eru hins vegar alvarleg mengunarslys sem hafa opnað augu okkar fyrir upplýsingaskyldu stjórnvalda í umhverfismálum og afleiðingar mannvirkjagerðar eins og við höfum fengið hrikalegar fréttir af varðandi lífríkið í Lagarfljóti. Þessi dæmi sem ég nefni núna ættu ein og sér að geta opnað augu okkar fyrir mikilvægi þess að taka tillit til náttúrunnar á hennar eigin forsendum, mikilvægi þess að virða varúðarsjónarmið og láta náttúruna njóta vafans þegar þekkingu skortir á áhrifum framkvæmda og mannvirkjagerðar.
Þetta frumvarp felur í sér heilsteyptari og skýrari lagaumgjörð en við höfum áður haft um vernd íslenskrar náttúru. Hér er að finna skarpari markmiðssetningu en við höfum áður haft. Við höfum hér kafla um meginreglur, aðlögun friðlýsingarflokka að alþjóðlegum viðmiðum, heimild til friðlýsingar heilla vatnasviða, viðbætur og breytingar á kafla um vernd jarðminja, vistkerfa, vistgerða og tegunda, kafla um framandi tegundir, akstur utan vega, vöktun náttúrunnar og aukin og bætt þvingunarúrræði stjórnvalda til að framfylgja þessum lögum.
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa fagnað framlagningu þessa frumvarps og skorað á Alþingi að tryggja framgang þess. Þau benda réttilega á að í frumvarpinu er tekið mið af alþjóðlegum skuldbindingum Íslands í samræmi við samninginn um líffræðilega fjölbreytni, svo sem CITES-samninginn um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu, tilskipunum Evrópusambandsins sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn, Bernarsamningnum, Ramsar-samningnum um verndun alþjóðlega mikilvægs votlendis og Árósasamningnum sem náttúruverndarsamtökin fagna sérstaklega. Þau benda á að núgildandi lög séu um margt bitlaus og efnisákvæði þeirra veik og telja að fyrirliggjandi frumvarp bæti töluvert úr og benda meðal annars á að ráðherra er í þessum lögum veitt heimild til að kveða á um tímabundið bann við framkvæmdum eða nýtingu sem skaðað geti verndargildi náttúruminja sem teknar eru á framkvæmdaáætlun. Bannið gildir þar til auglýsing um friðlýsingu eða friðun hefur verið birt en verði ekki af friðlýsingu eða friðun innan fimm ára falli það niður.
Þau vekja líka sérstaklega athygli á ákvæði í frumvarpinu sem heimila stjórnvöldum að bregðast við brotum gegn ákvæðum laga og reglna, ekki síst með beitingu þvingunarúrræða. Hingað til hefur borið á því, eins og dæmin sanna, að stjórnvöld hafa staðið úrræðalítil eða jafnvel með öllu úrræðalaus þegar brotið er gegn náttúruverndarlöggjöfinni.
Náttúruverndarsamtökin vekja líka athygli á því, og ég tek undir það, að Íslendingar mega ekki verða eftirbátar annarra þjóða í þessum efnum enda hljóta meginreglur umhverfisréttarins að vera forsenda hins græna hagkerfis sem við leggjum svo ríka áherslu á. Þau vekja líka athygli á því, eins og við ræddum aðeins fyrr í dag, að aðdragandi þessa máls er allnokkur. Hann byggir á hvítbókinni um löggjöf til verndar náttúru Íslands sem kom út árið 2011. Henni fylgdi víðtæk og ítarleg umræða, hún var meðal annars rædd í þaula á umhverfisþingi árið 2011 og byggir á vinnu fjölda sérfræðinga um náttúru landsins og var fulltrúum almannasamtaka veitt aðkoma að þeirri umræðu. Samtökin telja að aldrei áður hafi verið gerð jafnítarleg greining á íslensku náttúrufari, sérkennum þess og hvernig unnt sé að tryggja betur verndun náttúru landsins með nýrri og öflugri löggjöf.
Eftir að frumvarpið kom fram og var sett inn í opið umsagnarferli tóku að heyrast gagnrýnisraddir úr ýmsum áttum um innihald frumvarpsins. Mér fannst ýmislegt af þeim ábendingum sem komu fram eiga rétt á sér og tillit til þeirra hefur verið tekið. Sumt af þessu byggði þó að mínu mati á ákveðinni tortryggni og jafnvel misskilningi, t.d. um að frumvarpið sé illa unnið og án samráðs. Það tel ég ekki rétt, eins og við höfum rætt nú þegar. Ýmislegt í þeirri gagnrýni sem hefur komið fram varðar auk þess ákvæði í núgildandi lögum og framan af umræðunni var það töluvert áberandi. Verið var að gagnrýna ýmsa hluti sem eru í núgildandi lögum sem þetta frumvarp breytir litlu um eða engu, en að svo miklu leyti sem efnislegar ábendingar komu fram var orðið við þeim eftir fremsta megni, eins og ég sagði og margoft hefur komið fram.
Þetta frumvarp bætir rétt útivistarfólks, tryggir rétt fólks til að ferðast um landið. Almannarétturinn er styrktur og samkvæmt frumvarpinu er Umhverfisstofnun veitt heimild til að bregðast við, t.d. ef för gangandi fólks er hindruð með ólögmætum hætti. Við getum samt ekki lokað augunum fyrir því að utanvegaakstur og vaxandi umferð vélknúinna ökutækja er veruleg ógn við náttúru landsins, öræfanáttúruna og hálendið. Við höfum séð á myndum átakanleg dæmi þess á síðustu missirum hvernig utanvegaakstur skemmir og eyðileggur landið og skilur það eftir örum rist, má segja. Við því þarf auðvitað að bregðast og í þessu frumvarpi er það gert. Varðandi efnisátektir þeirra sjónarmiða sem lúta að utanvegaakstri finnst mér ástæða til að vekja sérstaka athygli á því að í 31. gr. frumvarpsins er kveðið á um að það sé heimilt, ef nauðsyn krefur, að aka vélknúnum ökutækjum utan vega vegna lögreglustarfa, sjúkraflutninga og björgunarstarfa. Þetta finnst mér ástæða til að taka sérstaklega fram vegna umræðu sem varð hér fyrr í dag.
Samkvæmt frumvarpinu skal ráðherra, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar, kveða í reglugerð á um undanþágur frá banni, m.a. vegna starfa manna við landbúnað, landgræðslu og heftingu landbrots. Síðan segir:
„Umhverfisstofnun er einnig heimilt að veita undanþágur vegna annarra sérstakra aðstæðna og skal ráðherra í reglugerð samkvæmt grein þessari kveða á um nánari skilyrði fyrir veitingu þeirra.“
Mér finnst rétt að vekja athygli á þessu vegna þess að ef marka mætti umræðuna eins og hún hefur verið að undanförnu, sérstaklega hér fyrr í dag, mætti ætla að bændur kæmust ekki um lönd sín, björgunarsveitir gætu ekki athafnað sig, hvorki á æfingum né í aðgerðum, sjúkraflutningar væru takmarkaðir og annað í þeim dúr, en eins og menn hljóta að sjá þegar lesið er orðrétt upp úr þessu ákvæði fer því fjarri að svo sé.
Mér finnst seilst langt til móts við stríðandi sjónarmið í þessu máli en við verðum líka að hafa hugfast að hér er á ferðinni náttúruverndarfrumvarp sem fjallar um náttúruvernd, ekki um ferðafrelsi eða um réttarstöðu akandi vegfarenda. Löggjöfin hlýtur að taka mið af þeim markmiðum sem henni er ætlað að uppfylla.
Frú forseti. Ég vil að lokum segja vegna þeirrar gagnrýni sem hefur komið fram, m.a. frá útivistarfólki og akstursklúbbum, að ég er sjálf útivistarkona og unnandi íslenskrar náttúru, ég er göngukona og vil geta tjaldað úti í náttúrunni þar sem því verður við komið, ég hef verið hestamaður nánast allt mitt líf og vil komast ríðandi leiðar minnar þegar svo ber undir, ég er jeppaeigandi og björgunarsveitarmaður og vil geta ekið eftir akfærum slóðum og leitað vaðs þar sem það á við og sem slík, göngukona, jeppaeigandi og hestamaður, er ég ánægð með þetta frumvarp eins og það er orðið.