náttúruvernd.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svörin. Við erum sammála um mikilvægi þess að hafa sem breiðasta samstöðu og sátt eins og hægt er við samþykkt svona mikilvægs frumvarps. Ég held að ekki séu neinar deilur um það, sama hvar menn standa í pólitík eða bara starfa almennt úti í þjóðfélaginu, að menn vilja hlífa náttúrunni og vernda hana.
Maður staldrar dálítið við það að búið sé að safna 16 þús. undirskriftum frá fólki sem er mikið í útivist. Mín reynsla af einstaklingunum í þessum 4x4-klúbbum er að þeir séu akkúrat fólkið sem er hvað mest meðvitað um mikilvægi þess að vernda náttúruna. Það gengur þannig um hana. Þó að alltaf séu einhver skemmd epli innan um hefur það komið fram á fundum að þessir aðilar bera einmitt mjög mikla virðingu fyrir náttúrunni og gera sér grein fyrir henni. Þess vegna staldrar maður við.
Ég á ekki sæti í hv. nefnd og er að reyna að klóra mig í gegnum þetta með önnunum í þeirri nefnd sem ég sit í en mig rekur ekki minni til þess að hafa séð jafnítarlegt breytingartillöguskjal og lagt er fram af hálfu meiri hluta nefndarinnar. Það eru um sjö blaðsíður af breytingum á frumvarpinu sem eiginlega staðfestir að auðvitað hefði mátt undirbúa málið betur og jafnframt að nefndin hefur lagt mikla vinnu í málið. Það ber að þakka. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hún gæti verið sammála mér um að það væri æskilegra að taka þessar breytingartillögur aftur inn í ráðuneytið og láta útbúa nýtt frumvarp og reyna að taka það til afgreiðslu næsta haust.