náttúruvernd.
Forseti. Í þeirri tillögu sem hér liggur fyrir stendur, með leyfi forseta:
„Þegar alvarleg spjöll verða á náttúru landsins […] má gera upptækt með dómi vélknúið ökutæki sem notað hefur verið við framningu brots […] nema ökutækið sé eign manns sem ekkert er við brotið riðinn.“
Þetta þýðir að það á einungis að refsa ferðamanni sem fremur alvarlegt brot, án þess að alvarlegt brot sé skilgreint, ef hann er ekki á lánsbíl. Það á aðeins að refsa ferðamanni sem er á eigin ökutæki en ef hann er á lánsbíl má ekki refsa honum. Ég fæ þetta ekki til að ganga upp í mínum huga. Ef ég er á lánsbíl á ferð um hálendið get ég sóðað þar út eins og ég vil án þess að vera refsað en ef ég er á eigin bíl er hægt að refsa mér. Ég á mjög erfitt með að skilja hvernig stendur á að þetta ákvæði hafi farið inn og ég held að það þurfi ekki lögfræðinga á fullu tímakaupi til að skýra þetta út fyrir okkur. Mér finnst þetta ósköp einfalt, ef við ætlum að refsa í þessu tilviki fyrir skemmdir á ekki að skipta neinu máli hvort viðkomandi er á lánsbíl eða eigin farartæki. Brotið er jafnt hvernig svo sem eignarhaldinu á viðkomandi ökutæki er háttað.