náttúruvernd.
Virðulegi forseti. Við tölum um frumvarp til laga um náttúruvernd sem er innbundin bók, umtalsvert plagg sem hér er lagt fram. Frumvarpið er búið að vera til vinnslu hjá nefndinni síðla vetrar og kemur hingað í 2. umr. á næstsíðasta starfsdegi þessa þings. Frumvarpið er svo mikið að vöxtum að við getum talað hér endalaust og farið ofan í einstakar greinar til þess að biðja um skýr svör vegna þess að þau hafa sannarlega ekki fengist. Frumvarpið er svo mikið að vöxtum að þrátt fyrir meint samráð, sem ég kem betur inn á á eftir, hefur meiri hlutinn greinilega lagt sig umtalsvert fram í nefndinni — ég hrósa þeim fyrir það — og lagt hér fram breytingartillögur, 56 stykki á sjö blaðsíðum.
Hvernig í ósköpunum eigum við, frú forseti, að fjalla um mál sem hefur tekið svo miklum breytingum án þess að um það hafi verið fjallað hjá öðrum? Ég vil benda á að Samband íslenskra sveitarfélaga sendi inn umsögn við málið upp á 13 blaðsíður. Eftir að breytingartillögurnar voru lagðar fram hefur Samband íslenskra sveitarfélaga lagt fram umsögn um þær upp á heilar þrjár blaðsíður. Það hafa hins vegar fæstir aðrir gert. Það er hins vegar þannig sem þarf að vinna svona mál.
Frú forseti. Ég verð í upphafi míns máls að tala um það tímaleysi sem þetta mál er sett fram í og þá óvirðingu sem meiri hluti þingsins sýnir málinu með því að troða því á dagskrá á næstsíðasta degi þingsins. Tilgangurinn getur vart hafa verið sá að klára málið á morgun eða á laugardaginn eða á mánudaginn eða þriðjudaginn. Það getur varla verið tilgangurinn með 56 breytingartillögur á sjö blaðsíðum. Hvar er forgangsröðin? Af hverju erum við ekki að klára hér mál sem skipta máli, mál sem mundu létta róður heimilanna, mál sem mundu hjálpa til við uppbyggingu atvinnulífsins? Af hverju í ósköpunum tökum við heilan dag, og stefnum í að vera fram á kvöld og nótt, hefur mér skilist, í að ræða mál sem öllum má vera ljóst að verður ekki klárað? Í fjöldanum öllum af þeim umsögnum sem ég hef kynnt mér stendur að augljóst sé að þetta sé umfangsmikið mál og margar athugasemdir hafi verið gerðar og svo enda umsagnirnar gjarnan á því að segja að málið sé ótækt til afgreiðslu á þessu þingi og rétt sé að það fái umfjöllun og verði síðan lagt fram að nýju með þeim breytingartillögum sem menn hafa gert á næsta þingi og þá komi umsagnir. Þá gætum við farið að taka vitræna umræðu í staðinn fyrir að fjalla hér um 56 breytingartillögur og klára málið á næstu dögum. Þetta er ekkert vit. Forgangsröðunin hér er í þvílíkum molum að maður skilur ekki til hvers þessi háttur er hafður á.
Varðandi samráðið eða hið meinta samráð hefur hæstv. umhverfisráðherra jafnvel gengið lengst allra ráðherra í núverandi ríkisstjórn í að senda mál út undir því yfirskini að það sé verið að hafa samráð við almenning og alla, en um leið hefur hæstv. umhverfisráðherra harðneitað að taka inn í vinnuhópana, sem eiga að vinna málin, þá sem hafa vit á og þekkingu. Vitna ég hér til umsagnar Bændasamtakanna sem hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson fór ágætlega yfir, að þeir hefðu ítrekað leitað eftir því að koma að málinu og að lokum, eftir langan tíma, verið neitað.
Svo kemur hv. formaður nefndarinnar, Ólafur Þór Gunnarsson, hingað upp og segir að samráðið hafi átt sér stað við vinnu nefndarinnar og hún hafi tekið upp tillögu Bændasamtakanna að ræktuðu landi. Þegar maður les umsögn Bændasamtakanna er vitnað til þess að sú skilgreining sé ekki til og sent bréf frá fyrrverandi ráðunauti Óttari Geirssyni frá árinu 2002 þar sem fjallað er um tún. Í búfjárhaldslögunum sem við höfum fjallað um í atvinnuveganefnd, frú forseti, er líka fjallað um ræktað land og það sama er þar. Þar er vandinn hvað sé skilgreining á ræktuðu landi, hvað sé nytjaland. Hjá Hagstofunni er nytjaland skráð sem land sem er annaðhvort nýtt til þess að heyja af því gras, korn eða uppskeru af einhverjum öðrum tegundum eða til beitar, skógræktar eða einhvers annars. Það er nytjaland. Það á að skrá hjá Hagstofunni. Í þessu frumvarpi tekur nefndin sér það fyrir að skilgreina ræktað land upp á nýtt með alls kyns vandræðum og pyttum sem hún lendir í. Gott og vel, hafi þessi tillaga komið frá Bændasamtökunum á endasprettinum þarf hún augljóslega meiri umfjöllunar við, fleiri þurfa að skoða hana, það þarf að bera hana saman við önnur lög, það þarf að fá umsagnir frá fleiri aðilum. Það liggur í augum uppi. Það þýðir ekkert að vaða svona áfram, frú forseti, með einfalda hluti eins og hvað orð þýða í lögum því að það er gríðarlega mikilvægt.
Ég verð að segja að mér fellur ekki sá andi sem ég skynja í frumvarpinu. Þetta er frumvarp boða og banna. Alls staðar stendur að heimilt sé eða að menn þurfi að sækja sér heimild eða að óheimilt sé og síðan, ef menn brjóta gegn því sem heimilt er, eru auðvitað refsingar og annað í þeim dúr við því. Andinn er neikvæður, í honum felast boð og bönn. Það er ekki að furða, frú forseti, að 16 þús. manns hafi skrifað undir á ferdafrelsi.is til þess að mótmæla þessu frumvarpi og það er ekki að furða að þessa dagana, þegar málið er komið á dagskrá, skuli velta inn tölvupóstur til okkar þingmanna frá útivistarsamtökum, frá félagasamtökum sem hafa farið um landið, frá fólki sem bendir á ágalla varðandi umferð fatlaðs fólks og frá hinum og þessum úr samfélaginu sem segja: Þetta frumvarp er svo gallað að það má ekki fara lengra.
Hvað erum við að gera hér, frú forseti, á síðustu dögum þingsins að taka þetta mál til 2. umr. með 56 breytingartillögum meiri hlutans á frumvarpi sem á að hafa verið unnið í feiknalegu samráði í mörg ár? Það er augljóst að það samráð hefur falist í því að senda málið út, eins og hæstv. umhverfisráðherra hefur gjarnan gert, taka málið til sín og hlusta ekki á eina einustu athugasemd sem ekki hentar hinni pólitísku skoðun sem á að koma fram og kemur fram í frumvarpinu. Þetta er þröngsýnt frumvarp. Þetta er ekki sú víðsýni og sá andi sem við viljum búa við á Íslandi. Það vilja allir náttúruvernd á Íslandi. (Gripið fram í.) Það vilja allir ganga vel um landið. (Gripið fram í.) Það vilja allir hafa skýrar reglur um það, en menn vilja ekki hafa boð og bönn. (Gripið fram í: Rétt.) Þannig er það.
Frú forseti. Skynsamlegast væri að taka þetta mál af dagskrá og setja önnur skynsamlegri mál á dagskrá er snerta heimilin, er snerta atvinnulífið (Gripið fram í: Það má ekki.) og reyna að finna út úr því hvernig við ætlum að ljúka þessu þingi í staðinn fyrir að halda þessum vitleysisgangi áfram.
Fjárlagaskrifstofa fjármála- og efnahagsráðuneytisins hefur síðustu vikurnar skilað inn umsögnum við hvert frumvarpið á fætur öðru upp á margar blaðsíður, hér eru þær fimm, í frumvarpi almannatrygginga voru þær ellefu, í frumvarpi um LÍN voru þær sjö, þar sem öll þessi frumvörp eru harðlega gagnrýnd fyrir fullkominn skort á samræmi við þá stefnu ríkisstjórnarinnar að ná núllrekstri í ríkisrekstri, þar sem bent er á fullkomið agaleysi í fjármálum ríkisins, þar sem bent er á að hvergi hafi verið tekið tillit til þess í fjárlagagerðinni, þrátt fyrir að gildistakan sé sögð á þessu ári í frumvörpunum, að það eigi að koma peningar inn í þetta verkefni. Ef frumvörp eru almennilega unnin, gildistakan skýr og fram kemur hvernig eigi að fjármagna þau þá er umsögn fjárlagaskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytisins innan við eina A4-síðu, jafnvel hálf síða. Hingað kemur hvert frumvarpið á fætur öðru illa unnið og með afar óskýran grunn um hvernig eigi að fjármagna augljós merki um gríðarleg útgjöld í framhaldinu, þenslu ríkisins, ríkisstofnana.
Hv. þm. Ásmundur Einar Daðason í 1. minni hluta fór aðeins yfir það í ágætu nefndaráliti sínu í ræðu og hv. þm. Gunnar Bragi Sveinsson vitnaði einmitt í það að útgjöld Náttúrfræðistofnunar hafa meira en tvöfaldast frá árinu 2007 og munu halda áfram að vaxa á næsta ári. Á sama tíma eru verkefni tekin frá náttúrustofum hringinn í kringum landið í þessu frumvarpi og færð til Náttúrufræðistofnunar, um 140 milljónir til sjö eða átta náttúrustofa. Þensla umhverfisráðuneytisins á þessu kjörtímabili hefur verið ævintýraleg, Umhverfisstofnunar líka. Boð og bönn, frú forseti, boð og bönn.
Við framsóknarmenn viljum svo sannarlega ganga vel um náttúruna og um landið og það vilja allir sem senda umsagnir við þetta mál — allir, hver einn og einasti. Þeim finnst einfaldlega að í frumvarpinu sé of langt gengið.
Umsögn frá sveitarfélögunum, hinni upprunalegu sem kom frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga upp á 13 síður, var ekki eina umsögnin sem koma frá sveitarfélögum í landinu. Fjölmörg sveitarfélög sendu inn umsagnir.
Í viðbótarumsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga stendur eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Ýmsar breytingar sem umhverfis- og samgöngunefnd leggur til á frumvarpinu koma ágætlega til móts við athugasemdir sveitarfélaga og samtaka þeirra. Alvarlegum umkvörtunarefnum við frumvarpið hefur þannig fækkað töluvert.“
Ekki er búið að útrýma þeim heldur hefur þeim fækkað.
„Að áliti sambandsins myndu sveitarstjórnir samt almennt vilja sjá frumvarpið unnið betur áður en það verði lagt fram á næsta þingi. Í því sambandi vísar sambandið sérstaklega til umsagna einstakra sveitarfélaga þar sem koma fram ábendingar um ýmis atriði sem ekki er fjallað um í umsögn sambandsins.“
Og vegna þess samráðs sem hv. formaður umhverfis- og samgöngunefndar var svo gríðarlega stoltur af ætla ég að nefna hér nokkur dæmi:
Í sambandi við 37. gr. segir:
„Að áliti sambandsins eru breytingar sem gerðar hafa verið á greininni til bóta en ákvæðið þyrfti samt að vinna betur.“
Um 3. mgr. 57. gr. stendur:
„Skýringar í nefndaráliti á orðalaginu „brýn nauðsyn“ eru til ákveðinna bóta en samt alls ekki nægjanlegar.“
Um 6. mgr. 57. gr., þ.e. sömu greinar:
„Orðalagsbreyting nefndarinnar er alls ekki til bóta.“
Um 82. gr. segir sambandið:
„Sambandið telur ekki heppilegt, miðað við núverandi lagaumhverfi þjóðgarða að segja í 1. mgr. 82. gr. að starfsmenn þjóðgarða séu starfsmenn Umhverfisstofnunar. Verður ekki séð hvaða nauðsyn er á því orðalagi.“
Frú forseti. Ég tók bara nokkur dæmi, ég hefði getað lesið fjölmörg önnur. Hér er þó viðbótarumsögn, hér er þó eitthvað sem við þingmenn getum farið að taka mark á. Hér er eitthvað um það sem búið er að skoða, þ.e. þessar 56 breytingartillögur nefndarinnar. Samt eru fjölmargar athugasemdir gerðar og bent á að í umsögnum einstakra sveitarfélaga eru enn fleiri sem ekki hefur verið komið til móts við.
Tökum aðeins síðastnefnda athugasemd fyrir. Því í ósköpunum eiga allir starfsmenn þjóðgarða að vera starfsmenn Umhverfisstofnunar?
Þegar Vatnajökulsþjóðgarður var settur á laggirnar var fyrsta starf sem var auglýst undir nýjum lögum og breiðfána — mig minnir að þetta hafi komið frá Samfylkingunni, kannski voru það Vinstri grænir, ég man það ekki — starf án (Gripið fram í: Staðsetningar.) staðsetningar hét það. Þetta var fyrsta starfið, starf forstjóra Vatnajökulsþjóðgarðs. (Gripið fram í.) Ég veit að frú forseti þekkir þetta mál mjög vel. Hvar endaði þetta starf? Þetta var fyrsta starfið. Þetta var ekki starf forstjóra Umhverfisstofnunar sem hafði alltaf haft aðsetur í Reykjavík, heldur var þetta fyrsta starf samkvæmt þessum nýju lögum sem voru tilkynnt með fánaborg og lúðrablæstri. Nei, þetta starf hafði verið hugsað sem starf úti á landi en var auglýst án staðsetningar og endaði í Reykjavík, er þar og verður. Samkvæmt þessu frumvarpi eiga allir starfsmenn helst að hafa heimilisfesti þar og vera starfsmenn Umhverfisstofnunar. Af hverju í ósköpunum hugsum við ekki aðeins víðar?
Ég hef sjálfur til að mynda verið með þær hugmyndir að vera með þjóðgarðana okkar í svipuðum lagaramma og umbúningi og þjóðgarð Skota sem var stærsti þjóðgarður Evrópu áður en við stofnuðum Vatnajökulsþjóðgarð. Þar er sjálfstæð stjórn. Hún heyrir ekki undir ríkið. Þar koma sveitarfélögin á svæðinu að, þar kemur ríkisvaldið að, skoska þingið, og þar koma hin frjálsu félagasamtök að. Þetta er gríðarlega stór stjórn, ég held að það hafi verið 20 eða 40 manns í stjórninni. Þetta er lýðræðisleg stjórn og síðan er minni framkvæmdanefnd sem sér um að stýra garðinum frá degi til dags. Starfsmennirnir eru búsettir í garðinum enda búa 18 þús. manns þar. Í þessum þjóðgarði má gera allt það sem menn gera í venjulegu lífi. Á sumum svæðum innan þjóðgarðsins er hins vegar hámarksvernd þar sem ekki má gera neitt.
Við á Íslandi höfum flokkað alla þjóðgarðana og allar friðlýsingar samkvæmt alþjóðlega staðlinum sem ég þori ekki að fara með skammstöfunina á. Mig minnir að flokkarnir séu fimm frekar en sex þar sem í efsta flokknum er allt friðað. Þinghelgin á Þingvöllum er í þeim flokki. Það þarf hins vegar ekki að þýða að allur þjóðgarðurinn á Þingvöllum eigi að vera undir því merki. Vatnajökulsþjóðgarður, sá stóri garður, ætti náttúrlega alls ekki að vera undir slíku. Hann ætti að flokkast í mismunandi flokka. Þannig gæti fólk búið eðlilega og nýtt þjóðgarðinn til atvinnuuppbyggingar eins og við höfum oft verið að tala um og margir hafa gert ágætlega. Ég vil helst hrósa þeim sem hafa staðið að Ríki Vatnajökuls, sveitarfélögunum þar fyrir austan, heimamönnum mörgum, ferðaþjónustuaðilum og einstaka atvinnurekendum sem hafa nýtt sér þetta tækifæri.
Hættan er sú og ekki síst með þessu frumvarpi að verið sé að þrengja að og færa valdið inn í ríkisstofnanir sem hafa aðsetur á höfuðborgarsvæðinu í staðinn fyrir að hafa valdið hjá þeim sem starfa á svæðinu. Það væri skynsamlegri leið, frú forseti. Ég held að við séum á villigötum, hér þurfi nýja og víðari hugsun. Ég tel það vera þröngsýni að ætla að setja alla þjóðgarða landsins undir Umhverfisstofnun. Ég tel það rangt og að fara eigi aðrar leiðir. Þess vegna er svo nauðsynlegt að málið fari eitthvert annað og komi aftur inn í þingið eftir að fjallað hefur verið um þetta.
Ég ætla aðeins að nefna um einstaka þætti í frumvarpinu. Það sem ég ætlaði að fjalla um fyrst er í XI. kafla, Framandi tegundir. Ég hefði gjarnan viljað að hér væri einhver úr nefndinni til þess að svara þeim spurningum sem ég er með. Það er reyndar tekið fram að þetta gildi „þó ekki um búfé eða framandi plöntutegundir sem ætlaðar eru til yl- eða garðræktar eða hafa verið notaðar til landgræðslu og skógræktar nema innflutningur sé bannaður samkvæmt reglugerð, samanber 5. mgr.“, svo að ég vitni nú hér, vonandi með leyfi forseta, í 63. gr.
Ef þetta frumvarp verður að lögum sýnist mér að við séum komin með Umhverfisstofnun og Matvælastofnun, tvær stofnanir, sem fjalla eiga um sambærilegan hlut sem við höfum að stærstu leyti látið einni eftir. Ég vildi gjarnan heyra álit formanns hv. nefndar á því, ef hann getur útskýrt það fyrir mér, hvort hér sé ekki um breytingu á núgildandi lagaumhverfi eða aðstæðum að ræða þar sem við erum að færa umfjöllun um innflutning á þessum lífverum undir tvær ríkisstofnanir með tilheyrandi vandræðagangi, hvort þetta hafi ekki verið með þeim hætti eftir að Matvælastofnun varð til að hún hafi hreinlega óskað eftir umsögn frá öðrum og hafi ævinlega farið eftir því hafi komið neitun frá Umhverfisstofnun eða Náttúrufræðistofnun. Ég held að þarna sé í það minnsta hætta á því að verið sé að fara eitthvað út af brautinni.
Það er því mikilvægt, enn og aftur, að við látum staðar numið eftir að þessar umsagnir eru komnar inn og að málið verði sent ríkisstjórninni aftur, eins og hv. þm. Ásmundur Einar Daðason, flutningsmaður nefndarálits 1. minni hluta í umhverfis- og samgöngunefnd, hefur lagt til, með þeim gögnum sem komin eru, öllum breytingartillögum og umsögnum, og það unnið að nýju. Þá getum við farið að fjalla gáfulega um þetta frumvarp.
Varðandi 68. gr. í XII. kafla er gerð — ég ætla ekki að segja lymskuleg breyting, en breytingu er laumað inn á þeirri hugmyndafræði sem við ræddum á sínum tíma í sambandi við landsskipulagsstefnu í skipulagslögunum, sem var á þessu þingi og náðist ágæt sátt um, en gríðarleg átök hafa verið við sveitarfélögin um landsskipulag. Auðvitað urðu þau ekki öll sátt við niðurstöðuna en ég held að sú niðurstaða sem þar varð hafi verið ásættanleg. Hér er hins vegar verið að lauma einu inni, hvort sem verið er að gera það eitthvað laumulega, eins og ég segi, eða bara af því að það stendur í greininni, en í svona mörgum greinum, í svo stóru máli á svo stuttum tíma er einmitt hættan á að slíkt fari fram hjá mönnum, með leyfi forseta:
„Framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár er bindandi við gerð skipulagsáætlana.“
Hvað með skipulagsvald sveitarfélaganna? Hvað með þann texta sem var notaður við næstu aðalskipulagsgerð, að sveitarfélögin ættu að reyna að setja þá þætti er snerta landsskipulag og eru orðnir bindandi inn í skipulagið en ættu möguleika á að færa rök fyrir öðru? Hvað varð um skipulagsvald sveitarfélaga í þessari grein? Fjölmargar aðrar greinar er snerta skipulagsvald sveitarfélaga skerða það stórlega og mörg sveitarfélög, frú forseti, gera verulegar athugasemdir við það. Þrátt fyrir að ég hafi rennt yfir sjö blaðsíður með 56 breytingartillögum varð ég hvergi varð við að þessir þættir væru lagaðir. Ég skal ekki fullyrða að það hafi ekki farið fram hjá mér en ég hef ekki séð það. Hér er því atriði sem þarf að skoða.
Ég ætla aðeins að vitna til umsagnar sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps varðandi inngrip í skipulagsvald sveitarfélaga með þessu frumvarpi. Það var vissulega í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem bent var á að sumt hefði verið lagað en annað ekki, eins og ég fór yfir hérna áðan. Það er til að mynda í 25. gr., Takmörkun umferðar, líka í 31. gr., Akstur utan vega, augljóslega náttúruminjaskráin og fleiri þættir. Ég veit að nefndin hefur tekið út umdæmin, þ.e. náttúruumdæmi og umdæmisstjóra og það allt sem var sérkennilegt mál, en ítrekað er farið ofan í mál sem þó var orðin nokkur sátt um, að ég hélt. Hér segir, með leyfi forseta:
„Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps telur nauðsynlegt að endurskoða þetta frumvarp til laga um náttúruvernd. Í frumvarpinu er ráðherra falið mikið vald til að taka ákvarðanir og setja reglugerðir um hinar ýmsu greinar sem geta verið íþyngjandi fyrir einstaklinga og framkvæmdaraðila án þess að sérstaklega sé getið um það í lögunum. Nauðsynlegt er að gera textann skýrari þannig að ekki þurfi að bíða eftir reglugerðum við einstaka liði frumvarpsins en samtals er vitnað um það bil þrjátíu sinnum í gerð reglugerðar í fyrirliggjandi frumvarpi. Verulega er gengið á ákvörðunarvald sveitarfélaga er snýr að skipulagi þar sem málefna náttúruverndar hefur alla jafna verið getið í aðal- og deiliskipulagi og þess gætt að hvorki sé gengið óhóflega á þau svæði sem eru á náttúruminjaskrá né þeirra sem friðlýst eru.“
Það er einmitt málið, eins og ég nefndi hér áðan um anda laganna, að þetta fer öfugt ofan í fólk sem hingað til hefur staðið vörð um náttúru Íslands og gert það vel, sveitarstjórnir víða um land, bændur víða um land, vörslumenn landsins sem hafa það markmið að skila því í betra ásigkomulagi til næstu kynslóðar en þeir tóku við því. Þessi lög fara þversum ofan í slíkt fólk vegna þess að andi laganna er svo ótrúlega neikvæður í garð þess.
Ég kom inn á rekstur þjóðgarða í 81. gr. og ætla ekki að fjalla um það mál frekar. Ég ætla að nota þann litla tíma sem ég á eftir til að fara yfir einstök atriði.
Í 14. breytingartillögu stendur, með leyfi forseta:
„Á eftir 20. gr. komi ný grein ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:
Umferð ríðandi manna.
Þegar farið er ríðandi um landið skal fylgt skipulögðum reiðstígum eins og kostur er. Bannað er að reka hrossastóð yfir gróið land þannig að náttúruspjöll hljótist af eða hætta skapist á náttúruspjöllum.
Á ferð um hálendi og önnur lítt gróin svæði skulu menn hafa tiltækt nægilegt aðflutt fóður fyrir hross sín.
Heimilt er mönnum, að fengnu leyfi eiganda eða rétthafa eignarlands þegar við á, að slá upp aðhöldum eða næturhólfum fyrir hross, enda valdi það ekki spjöllum á náttúru landsins. Á hálendi skal þeim valinn staður á ógrónu landi sé þess kostur.
Þegar farið er á hestum um eða höfð viðdvöl með hross á náttúruverndarsvæði, samanber XIV. kafla, þar sem starfandi er landvörður eða umsjónaraðili skal haft samráð við hann.
Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um umferð ríðandi manna og rekstur hrossa.“
Þegar menn lesa þessa grein geta þeir sagt: Já, þetta er bara skynsamlegt. Hljómar þetta ekki nokkuð vel? En þegar við tökum anda laganna, þegar við tökum þær yfirlýsingar sem menn hafa verið með, þegar við tökum þær ákvarðanir sem hæstv. núverandi umhverfisráðherra hefur tekið á kjörtímabilinu, þegar maður tekur dæmi af sögum þar sem fólk hefur farið ríðandi í hópum um hálendið og hitt fyrir landvörð sem hefur sagt þeim að gjöra svo vel að sópa saman öllum hrossaskítnum, setja hann í svartan plastpoka og fara með hann til byggða, þá segir maður: Í hvað er ekki hægt að nota þessa grein? Hver voru rökin fyrir þessari djörfu ákvörðun landvarðarins? Jú, í hrossaskítnum gætu leynst framandi verur sem mundu spilla því náttúrulega umhverfi sem þarna er. Þess vegna átti að banna hrossum að fara um þetta svæði og reyndar ýmsum öðrum, um Vonarskarðið og þar í kring. Þarna mátti fólk hins vegar ganga um án þess að hafa nokkra hreinlætisaðstöðu, fólk sem var jafnvel nýkomið frá útlöndum, hvaðanæva að úr heiminum, hafði borðað ótilgreindan mat í gær með ótilgreindar lífverur inni í sér. Það mátti skilja sitt eftir hingað og þangað um hálendið en hross sem alin eru upp á Íslandi og hafa étið íslenskt hey og íslenskt gras — nei, það varð að taka hrossaskítinn og fara með hann til byggða. Það er þess vegna sem mönnum mislíkar andi laganna. Það er þess vegna sem menn setja út á greinar sem hljóma ekkert illa. Það er þess vegna sem menn segja: Það þarf að vinna þetta betur.
Varðandi 31. gr. þá hefur verið fjallað talsvert um hana, um akstur utan vega. Í ágætu nefndaráliti 1. minni hluta hv. þm. Ásmundar Einars Daðasonar er m.a. fjallað um kortagrunninn. Ég ætla aðeins að fjalla um hann. Ég kom ekki inn á hann áðan og sagðist ætla að fjalla um hann síðar, geymdi mér það þar til nú.
Ágætisvinna hefur verið unnin í samstarfi sveitarfélaga, Umhverfisstofnunar, áhugaaðila, 4x4 og fleiri, Slóðavina og ýmissa aðila, um að kortleggja þá slóða sem eru í viðkomandi sveitarfélagi og menn eru tilbúnir að setja á kort. Ástæðan er sú að fyrir nokkrum árum var gríðarleg fjölgun á vélknúnum hjólum sem voru fyrst og fremst ætluð til ferðalaga um hálendi Íslands, sem sagt ekki götuhjól. Eins og í öllum hópum leyndist svartur sauður innan um og menn gengu býsna langt. Menn fundu gömul kort frá Landmælingum eða gáfu hugsanlega út sín eigin þar sem slóðar voru settir inn á og svo var keyrt á þeim slóðum eins og ekkert væri.
Í nefndarálit meiri hlutans er fjallað um að skynsamlegt sé að slóðar sem ekki eru notaðir eða heimilt að aka á séu á kortum. Ég tel það varasamt. Ég tel að á þeim kortum sem verða gefin út af Landmælingum og verða hin opinberu kort, væntanlega kort sem sýna þá slóða sem má aka, eigi bara að vera slóðar sem má aka. Sá sem fer um hálendið getur fundið kindaslóð og haldið því fram að það sé slóði eða hestagötur og haldið því fram að það sé slóði sem megi aka á vélknúnum hjólum þó að hann sé hvergi á korti og það hafa menn gert. Margir sem ég hef nefnt eru ábyrgir. Slóðavinir hafa til að mynda staðið fyrir heimsóknum bandarískra aðila hingað en þessi samtök eru gríðarlega sterk, skipulag starfseminnar er gríðarlega öflugt, gríðarlega margir koma að því starfi í sjálfboðavinnu að byggja upp vegi á þar til greindum svæðum og síðan er mönnum heimilt að aka um þau, ekki óheimilt eins og er undirtónninn í þessu frumvarpi heldur heimilt, og þurfa ekki að skrá ferðir sínar eða sækja um leyfi heldur er það bara heimilt. Það þarf hugsanlega að kaupa aðgang ef þetta eru lokaðir slóðar, sem þeir eru gjarnan í náttúrlega mun meira mannhafi. En þar eru líka víðerni sem þeir þurfa að ganga um með sambærilegum hætti. Þannig alast menn upp í því að ganga um náttúruna af virðingu alveg eins og þeir sem hafa verið vörslumenn landsins í gegnum aldirnar og hafa haft það markmið þegar geta hefur verið til á undanförnum 100 árum, 150 kannski, alla vega 130, að bæta landið, skila því í betra ásigkomulagi til næstu kynslóðar en þeir tóku við því. Það var auðvitað erfiðara hér á síðari miðöldum eða 17., 18. og langt fram á 19. öld vegna veðurfars. Þessir aðilar vilja einfaldlega gera þetta, en það tekur tíma. Menn verða að vera tilbúnir að eyða þeim tíma í það sem þarf til. Þetta kostar líka umtalsverða peninga. Eftir því sem mér sýndist þegar ég renndi yfir umsögn fjárlagaskrifstofunnar færu í þetta um 20 milljónir á ári í tíu ár, 200 milljónir, bara hjá Landmælingum, fyrir utan alla aðra sem kæmu að málinu.
Er ekki gáfulegra að taka smærri skref og byggja þetta upp að einhverju viti? Ég held það. Ég held að það sé óskynsamlegt — af því að hv. formaður nefndarinnar er í salnum — að setja slóða sem menn ætla ekki að nota inn á opinber kort. Ég held að það sé meiri hætta á að þeir verði nýttir því að þeir sem ætla að ganga um á löglegan hátt gera það en hinir sem ætla að brjóta lög munu ekki skrá ferðir sínar og senda Umhverfisstofnun. Þeir munu líka skjótast á þá slóða og segja ef þeir eru teknir á slóðunum: Nú, ég hélt að þetta væri slóði, hann er á kortinu mínu. Þannig er það. Ég held að þarna sé hægt að vinna skynsamlega og fara varlegar að.
Af því að ég sé að tími minn gengur mjög hratt ætla ég að geyma mér að fjalla um utanvegaakstur til seinni ræðu og fjalla aðeins um hið ræktaða land sem ég kom inn á í upphafi. Það verður að segjast alveg eins og er, eins og hv. þm. Ásmundur Einar Daðason fór ágætlega fyrir, að þegar meiri hlutinn vísar til reglugerðar 508/2005, þar sem verið er að taka þar upp gildistöku ákveðinnar reglugerðar Evrópusambandsins um aðskotaefni í matvælum, þá hlýtur hann að eiga við reglugerð 528/2005 sem fjallar um takmarkanir á umferð í náttúru Íslands.
„Þegar þessar tillögur eru skoðaðar“ — segir í nefndarálitinu — „og settar í samhengi við fyrirliggjandi frumvarp koma fram öfgafull sjónarmið, skilningsleysi á aðstæðum og/eða mistök.“
Eða skyldi það vera skortur á raunverulegu samráði, raunverulegum vilja til að setja sig í aðstæður? Ég hef ekki trú á því að þetta sé illgirni. Þetta gætu verið öfgafullar skoðanir, vanþekking og/eða tímaleysi.
Í nefndaráliti er ítrekað að þessi undanþága eigi einungis við um bændur en ekki „hjálparmenn“. Það þýðir þá að bændur geta ekki fengið aðstoð frá fólki við smalamennsku og önnur bústörf. Ég verð að segja, „hjálparmenn“, hvað erum við að skrifa inn í lagatexta? Það er mjög sérkennilegt að skilgreina sérstaklega að ekki megi nota fjórhjól á miðhálendinu. Ef miðhálendið er gúglað og prentað út kort af því þá er það allir afréttir landsins. Er það meining frumvarpsins að banna að notuð séu fjórhjól? Svo þarf að sækja um sérstaka heimild. Það er reyndar sagt, ef ég man rétt, að heimilað sé að fara í eftirleitir en þá skuli farið á farartækjum sem einungis séu á sex hjólum. Hvaða vitleysa er þetta? Má hinn vörpulegi nýi formaður Bændasamtakanna, sem hefur setið á þingi sem varaþingmaður, fara um á gríðarlega þungu sexhjóli? Eða er gáfulegra ef 70 kílóa liðléttingur, sonur hans eða starfsmaður, sem mér leiðist að kalla hjálparlið eða hjálparmenn, færi á fjórhjóli? Hvort skyldi skemma meira? Hvaða vitleysu er verið að skrifa inn í lagatexta? Ég verð að segja alveg eins og er að ég varð alveg gáttaður þegar ég las þennan texta. Andinn er neikvæður.
„Eftirleitir“, hvað eru eftirleitir í dag? Þekkir hv. umhverfis- og samgöngunefnd eða ráðuneytið og hæstv. ráðherrar hvernig eftirleitir fara orðið fram? Það er víðast búið að fækka þeim. Þær voru þrjár hér áður fyrr, farið var í hefðbundna haustsmalamennsku, síðan var farið í eftirsafn og þá var tekinn kúfurinn af því sem eftir var. Ef það var gott haust og hlýtt var erfitt að smala og margt fé eftir. Ef menn lentu í erfiðu smalaveðri, rigningu og þoku, þá var margt fé eftir. Svo var farið í eftirleitir þar sem fjórir menn fóru ríðandi á fjöll síðla vetrar og voru eins og sögurnar hafa verið hvað bestar, í Fjallkirkjunni hjá Gunnari, Bensa og forustufénu, og fóru um og smöluðu. Núna í dag, frú forseti, skjótast menn á jeppum, fjórhjólum eða með hestakerrur og smala þeim kindum sem þeir hafa séð til að bjarga þeim frá því að verða aldurtila úti í náttúrunni yfir veturinn. (Forseti hringir.)
Frú forseti. Ég hefði lagt til að það væri meira samráð í þessu máli, það hefði hjálpað málinu. (Forseti hringir.) Eins og staðan er er eina vitið að vísa því aftur til ríkisstjórnarinnar og leggja það fram á nýju þingi þegar menn hafa tekið tillit til þeirra breytinga og umsagna sem hafa legið fyrir. Þá getum við farið að fjalla af einhverju viti um málið.