141. löggjafarþing — 104. fundur,  15. mars 2013.

lengd þingfundar.

[11:09]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfundar, er það tillaga forseta að þingfundur geti staðið lengur en hvað þingsköp kveða á um. Það var óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta fyrr á fundinum og hefst nú atkvæðagreiðslan.