141. löggjafarþing — 104. fundur,  15. mars 2013.

neytendalán.

220. mál
[15:01]
Horfa

Eygló Harðardóttir (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Helga Hjörvar kærlega fyrir samstarfið við þetta mál í efnahags- og viðskiptanefnd. Það er eitt sem ég vil spyrja þingmanninn að: Telur hann að þetta lagafrumvarp sé nægilega gott til að tryggja hagsmuni þeirra sem taka húsnæðislán á Íslandi?