opinberir háskólar.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér frumvarp til laga um breytingu á umhverfi opinberu háskólanna. Ég held að margt í frumvarpinu sé tímabært. Eitt af því sem við höfum glímt við undanfarin ár eða síðan háskólunum fjölgaði er að lagaumgjörðin um þá er mismunandi sem hefur gert það erfiðara en ella að þeir starfi saman og að hægt sé að ná fram hagkvæmni í kerfinu. Ég tel að það sé hið besta mál að samræma lagaumhverfið og að allir háskólarnir falli undir sama lagaramma, þ.e. opinberu háskólarnir. Það er annað sem það gerir að verkum, það auðveldar sameiningar innan háskólakerfisins. Það er ljóst að háskólar eru of margir á Íslandi, þeir eru of litlir og veikburða og æskilegt er að sameina og fækka þeim. Þetta gæti verið fyrsta stigið í því.
Það er eitt sem mig langar að gera að umræðuefni hérna, það er hvernig þróunin hefur verið í háskólakerfinu á Íslandi. Sprottið hafa upp ótal háskólar, hvort sem það eru sjálfseignarstofnanir eða opinberir háskólar. Það hefur leitt það af sér að mínu áliti að háskólakerfið er ekki jafngott á Íslandi og það gæti verið. Það held að ég að megi rekja til mistaka sem gerð voru á Íslandi. Háskólar í öðrum löndum, t.d. á Norðurlöndum, eru yfirleitt tvenns konar háskólastofnanir., þ.e. það sem er kallað upp á norræna tungu „universitet“, og mundi Háskóli Íslands falla vel að þeirri skilgreiningu þar sem eru kenndar greinar á klassískum fræðasviðum og í félagsvísindum flestar þær háskólagreinar sem í boði eru í almennum háskólum. Síðan er það sem á skandínavísku heitir „højskole“. Þar er um þrengri kennslu að ræða, t.d. landbúnaðarháskóla, viðskiptaháskóla eða háskóla sem einbeitir sér að einhverju einu fagi.
Ég tel að það hafi verið mjög bagalegt að taka upp háskólanafnið eða „universitet“ yfir allar háskólastofnanir eða sem tilheyra framhaldsmenntun í landinu. Það kemur fram í því að t.d. litlir skólar með 200, 300, 400 nemendur hafa jafnvel farið fram á að fá að útskrifa doktora. Ég held að það geti enginn sanngjarn maður sem þekkir vel til innan háskólakerfisins fallist á að svo litlir háskólar hafi yfir þeirri þekkingu að ráða að þeir geti menntað doktora. Það er einn gallinn við litla skóla.
Jafnvel þó svo að litlir háskólar geti verið ákaflega góðir eins og Landbúnaðarháskóli Íslands, sem er mjög sterkur á fræðasviðinu — þar birta kennarar við skólann greinar í viðurkenndum vísindatímaritum og stunda rannsóknir sem eru á heimsmælikvarða, getum við sagt — held ég að „bakbeinið“ vanti samt sem áður í þá skóla. Ég er þeirrar skoðunar að það sé óeðlilegt að í landi þar sem búa 320 þúsund manns séu sjö háskólar.
Þess vegna held ég að sá grunnur sem frumvarpið veitir til þess að sameina háskóla, alla vega opinbera háskóla, sé af hinu góða og að það muni leiða til þess að sú þróun sem þarf að eiga sér stað á Íslandi geti orðið fyrr en ella. Jafnframt er hert á starfsheitum í háskólum, þ.e. ef eðlilegum farvegi er fylgt byrjar maður á því að vera lektor, síðan dósent og þá prófessor. (Utanrrh.: Ég var bara lektor. ) Hæstv. utanríkisráðherra kallar fram í að hann hafi aldrei orðið nema lektor. Það eru margir sem ná aldrei lengra og þeir eru ekki verri menn fyrir það. Þeir verða bara hæstv. utanríkisráðherrar í staðinn.
Hér er talað um að þeir skuli hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti sem sé staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla. Ég held að hérna hljóti frumvarpssmiðir eitthvað aðeins að hafa misskilið málið. Doktorspróf á alltaf að vera lágmarkskrafa og síðan er það staðfest með dómnefnd hvort menn eru hæfir til þess að gegna stöðu lektors, dósents eða prófessors, það er ekki annaðhvort, þ.e. maður getur ekki verið með doktorsgráðu og sjálfkrafa orðið hæfur til þess að fá eitthvað af þeim (Gripið fram í.) starfstitlum sem fylgja háskólaumhverfinu. Ég hefði því talið að á milli umræðna ætti aðeins að breyta orðalaginu. Ég sé að hinn prófessorinn í salnum kinkar kolli, lektorinn. (Utanrrh.: Ánægður með það.) Já, hann er ánægður.
Aðra nýjung er hér að finna, það er það sem kallað er samstarfsnet opinberra háskóla. Þar er talað um að rektorar opinberra háskóla sem fengið hafa viðurkenningu ráðherra skipi sérstaka verkefnastjórn um samstarfsnefnd skólanna undir forustu Háskóla Íslands. Síðan skulu einhverjir fleiri fulltrúar, sem óþarft er að telja upp, vera í þeirri nefnd. Nefndin á að fjalla um sameiginleg málefni skólanna eins og stoðþjónustuna, sameiginlega innritun, nám og námsframboð og að samræma skuli gæðamat á starfsemi háskólanna og samþætta sambærileg fræðasvið í kennslu og rannsóknum.
Fyrri hlutinn snýr að skriffinnsku og er einfaldlega hagræðingarkrafa en síðari hlutinn, þ.e. að samræma gæðamat, tel ég að sé af hinu góða. Það þarf að vera eftirlit með gæðum háskóla og til þess að særa ekki eða móðga ekki neinn skal ég taka dæmi frá Danmörku. Þar spruttu upp háskólar í hinum og þessum greinum hér og þar í Danmörku. Þegar gert var samræmt gæðamat á háskólunum kom í ljós að gæði námsins voru afar mismunandi og sumir skólarnir stóðust á engan hátt háar gæðakröfur. Það er alvarlegt að taka við ungmennum sem standa í þeirri trú að þau fái góða menntun, þau eru þar í þrjú ár eða ef um baccalaureate-gráðu er að ræða, oft fimm ár ef þau stefna að meistaragráðu, og svo allt upp í átta til tíu ár ef þau stefna að doktorsgráðu. Það er ekki gott mál ef menn uppgötva þá að þeir standast engin alþjóðleg viðmið.
Sem betur fer höfum við ekki lent í svo alvarlegum dæmum á Íslandi þó að vissulega séu gæðin mismunandi á milli háskólanna, án þess að ég ætli að fara að setja þá í einhverja gæðaröð, og líka á milli tímabila. Deild innan háskóla getur verið góð í einhvern tíma meðan þar eru ferskir starfskraftar og annað slíkt, en síðan drabbast hún niður með tímanum ef ekki verður eðlileg endurnýjun. Það fylgir því oft ef deildir stækka ekki. Fólk kemur t.d. heim úr doktorsnámi, fær lektorsstöðu og vinnur sig síðan upp í dósent og prófessor. Það fólk getur verið upp í 30 ár í einhverri deild og eins og við vitum er mjög sjaldgæft að opinberum starfsmönnum sé sagt upp og erfitt er að segja þeim upp, auk þess sem flækjan verður meiri innan háskólanna þegar losa þarf einhverja stöðu þar. Það er enn erfiðara en með opinbera starfsmenn.
Hvað um það. Ég sakna tillögu í frumvarpinu, hugmyndar sem var á reiki hér fyrir nokkrum árum. Hún er á þá leið að ef við viljum halda þessum fjölda háskóla í okkar litla landi er æskilegt að vera alla vega með sameiginlegt framhaldsnám, þ.e. meistaranám og doktorsnám, og reyna að samnýta kennara og fleira eftir föngum milli skóla, alla vega skal það vera skipulagt innan einnar heildar.
Finnar fór þá leið að þeir skipulögðu framhaldsnám sitt þannig að maður gat verið í hvaða háskóla sem var í Finnlandi, tekið þar baccalaureate-gráðu og eftir það farið í sameiginlegt prógramm þó svo að maður væri enn þá í sínum skóla. Þá sótti maður sameiginleg námskeið milli allra skólanna. Oftar en ekki voru það námskeið sem haldin voru á stuttum tíma, kannski á tíu, fjórtán dögum, en maður var þá allan daginn í þeim námskeiðum. Það reyndist ákaflega vel og var meira að segja víkkað út þannig að háskólar á Norðurlöndunum tóku sig saman um að bjóða upp á doktorsnámskeið á milli skóla. Þegar ég var í doktorsnámi mínu sótti ég m.a. slík námskeið og þau voru ákaflega góð. Þar var ég með eina færustu prófessora heims sem voru með góða stöðu við góða ameríska háskóla og ég var metinn eins og ég væri í amerískum háskóla, sem eru yfirleitt bestir á sínu sviði eins og flestir vita. Það eru þó til undantekningar frá því eins og gengur og gerist.
Ég sakna þess sem sagt að í frumvarpinu skuli ekki vera stigið það skref að búa til ramma sem gæti verið vel í tengslum við samstarfsnet háskólanna sem er meira stjórnsýslulegs eðlis hér, þ.e. að stíga ekki það skref að hér verði sameiginleg akademísk samvinna. Það sparar peninga, það býður upp á möguleika á að auka gæðin, alla vega fyrir þá skóla sem ekki geta boðið upp á mikil gæði á námskeiðum á framhaldsstigi, auk þess sem það býður upp á samræmingu sem tryggir gæði t.d. í doktorsnámi, ef við tökum það sem dæmi. Ég tala nú ekki um ef í slíkum „framhaldsskóla“ væri á einfaldan hátt hægt að bjóða upp á námskeið hjá færustu prófessorum heims. Þau tækju stuttan tíma, menn þyrftu kannski að sækja þau í tíu daga, hálfan mánuð. Ég sakna þess að það skref skuli ekki vera tekið.
Eftir að hafa sagt það verð ég að segja að það er mjög jákvætt að lagaumhverfi opinberu háskólanna sé samræmt og að rekstrarumhverfi þeirra sé gert sambærilegt. Samstarfsnetið snýr mest að stjórnsýslulegum hlutum, en hér er líka gerð tillaga um að reynt verði að tryggja samræmd gæði á milli sambærilegra fræðasviða. Það er allt af hinu góða.
Næsta skref sem ég held að við ættum að stíga er að reyna að ákveða hversu marga háskóla á að bjóða upp á eða hversu marga háskóla við ætlum okkur að vera með á Íslandi og í framhaldi af því að sameina þar sem við viljum sameina. Ef það yrðu tveir til þrír háskólar sem stæðu eftir ætti að setja upp prógramm sem tæki við nemendum sem færu í framhaldsnám, þ.e. í meistaranám og doktorsnám, og boðið yrði í algjörri samvinnu upp á námskeið. Þannig tryggjum við gæði kennslunnar, gerum hana sveigjanlegri og það verður auðveldara fyrir okkur að nota einhvers konar alþjóðleg viðmið.
Af því að tími minn er að renna út vil ég mælast til þess að á milli umræðna verði orðalag í 4. gr. lagað og sú hugsanavilla sem hérna er, sem ég veit ekki af hverju stafar. Hún hljóðar þannig:
„Þeir sem bera starfsheitin prófessor, dósent, lektor og sérfræðingur skulu hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á þeirra fræðasviði, staðfest með áliti dómnefndar eða með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla.“
Það er þetta „eða“ sem þarf að fara út og lágmarkskrafan þarf að vera doktorspróf og síðan dómnefnd.
Einnig tel ég að það eigi ekki við hér að blanda starfsheitinu „sérfræðingur“ inn í upptalninguna „prófessor, dósent, lektor“, sem eru hin þekktu heiti við háskóla, vegna þess að sérfræðingur er ekki eitthvert sérstakt háskólaheiti og á alls ekki heima í þeirri upptalningu.
Ég lýk nú máli mínu en ég er fylgjandi meginhugsuninni í frumvarpinu.