141. löggjafarþing — 106. fundur,  18. mars 2013.

lengd þingfundar.

[10:00]
Horfa

Forseti (Ásta R. Jóhannesdóttir):

Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 10. gr. þingskapa, um lengd þingfunda, er það tillaga forseta að fundur geti staðið lengur í dag en þingsköp kveða á um. Er óskað eftir atkvæðagreiðslu um þessa tillögu forseta? — Það er óskað eftir atkvæðagreiðslu um tillögu forseta og sú atkvæðagreiðsla fer fram að loknum óundirbúnum fyrirspurnatíma.

Í dag kl. 10.30 verða atkvæðagreiðslur. Forseti vill einnig láta þess getið að í dag verður gert hádegishlé í klukkustund á milli 12.30 og 13.30 fyrir matarhlé og þingflokksfundi.